Leikskólaleiðin í Reykjavík fær góðar viðtökur

Börn sitja upp á litlum kofa á leikskólalóð.

Um 36 prósent foreldra hafa stytt skráðan vistunartíma barna sinna fyrir innleiðingu Leikskólaleiðarinnar í Reykjavík 1. apríl næstkomandi. Mun færri foreldrar skrá börn sín í 40 klukkustunda vistun eða lengur á viku en áður.

Umtalsverðar breytingar á gjaldskrá voru meðal breytinga sem kynntar voru í febrúar og hafa fengið heitið Leikskólaleiðin í Reykjavík. Meðal annars er boðið upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun, og aukinn afslátt fyrir einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur. Áfram er hægt að skrá börn í allt að 42,5 stunda vistun.

Mikil stytting á vistunartíma barna

Foreldrum var boðið að breyta skráningu barna sinna fyrir gildistöku Leikskólaleiðarinnar 1. apríl og hefur hlutfall barna með skráðan vistunartíma 36 klukkustundir á viku eða færri hækkað frá október úr 9 prósentum í 24 prósent í lok mars. Þá hefur börnum með 38 stunda vistun eða minna fjölgað úr 10 prósentum í 23 prósent. Börnum með 38 stunda vistun eða minna hefur einnig fjölgað; hlutfallið hefur farið úr 10 prósentum í 23 prósent á sama tímabili. 

Samtals eru því 47 prósent barna með skráðan vistunartíma sem er 38 stundir eða skemur, samanborið við 19 prósent í byrjun október.

Á sama tíma hefur vistun umfram 38 stundir dregist verulega saman, eða um 28 prósentustig. Í október voru 81 prósent barna skráð með yfir 38 stundir en nú eru þau 53 prósent.

Dvalartími
  1. október 2025
30. mars 2026
Allt að 36 stundum á viku 9% 24%
36-38 stundir á viku 10% 23%
38-40 stundir á viku 37% 26%
40-42,5 stundir á viku 44% 27%

Mjög bjartsýn á þessar breytingar

„Það eru mjög miklar breytingar í gangi. Hjá okkur hafa um tveir þriðju foreldra þegar breytt vistunartíma hjá börnum sínum. Langflestir eru að stytta daginn og við sjáum strax að það mun létta á föstudögum, sérstaklega eftir klukkan þrjú. Við erum að púsla tímunum saman en við erum mjög bjartsýn og þetta lítur vel út við fyrstu sýn,“ segir Ragna Kristín Gunnarsdóttir, leikskólastjóri í Vogabyggð.

Sveigjanleiki líka nýttur á morgnana

Ragna Kristín segir foreldra líka stytta á morgnana og þar myndist ákveðinn sveigjanleiki við skipulagningu starfsins. „Sumum finnst gott að fá að sofa út og þetta sýnir að við höfum kannski verið dálítið föst í þeirri hugmynd að allir vilji byrja snemma. Þetta fer einfaldlega eftir starfsmannahópnum hverju sinni.“

Samstarfið við foreldra hefur, að sögn Rögnu, verið einstaklega gott og mikilvægt í ferlinu. „Foreldrar hafa tekið þessu ótrúlega vel og við finnum að þau vilja hjálpa okkur í gegnum breytingarnar. Það er frábært að finna þessa samstöðu og að foreldrar séu með okkur í liði,“ segir hún. „Auðvitað eru einhverjir sem hafa ekki möguleika á þessum sveigjanleika, það er fullkomlega skiljanlegt og mikilvægt að þau geti fengið þá þjónustu sem þau þurfa,“ segir Ragna Kristín að lokum.