Laus pláss hjá dagforeldrum í Reykjavík
Laus pláss eru á 19 daggæslustöðum hjá dagforeldrum í Reykjavík. Börn sem hefja vistun hjá dagforeldrum eru yfirleitt á aldrinum sex til níu mánaða.
Dagforeldrar halda sjálfir utan um biðlista sína og foreldrar hafa samband beint við dagforeldra vilji þeir sækja um pláss eða kynna sér starfsemina.
Dagforeldrar ákveða eigin gjaldskrá en Reykjavíkurborg niðurgreiðir hluta dvalargjaldsins. Niðurgreiðslan hækkar þegar barn nær 18 mánaða aldri.