Landskjörstjórn opnar fyrir söfnun meðmæla til sveitarstjórnarkosninga 2026

Talning atkvæða í borgarstjórnarkosningunum 2022
Talning atkvæða í borgarstjórnarkosningunum 2022

Landskjörstjórn hefur opnað fyrir söfnun meðmæla með framboðum til sveitarstjórnarkosninga. Kjósendur geta mælt með einu framboði í sínu sveitarfélagi. 

Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram 16. maí og atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 17. apríl. Framboðsfrestur rennur út á hádegi föstudaginn 10. apríl.

Væntanleg framboð þurfa að safna meðmælum með framboði sínu frá kjósendum í viðkomandi sveitarfélagi til að fá að bjóða fram.

Fjöldinn sem þarf að safna er misjafn eftir íbúafjölda. Í Reykjavík þarf fjöldi meðmæla með hverju framboði að vera á bilinu 160-320.

Aðeins er hægt að mæla með einu framboði fyrir kosningar. Fólk getur þó afturkallað meðmæli sín með framboði þar til framboðsfrestur rennur út eða þar til viðkomandi framboð hefur skilað inn framboðsgögnum.

Rúmlega mánuður gefst til að safna meðmælum áður en framboðsfrestur rennur út 10. apríl, föstudaginn eftir páska.

Borgarstjórnarkosningar 2026

Í borgarstjórnarkosningunum 2026 verða 24 kjörstaðir í Reykjavík. Þegar kjósendur mæta á sinn kjörstað eiga þeir að framvísa skilríkjum. Greiðslukort og skilríki með mynd og kennitölu teljast fullgild. Þá er einnig hægt að skrá sig inn á Ísland.is.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna borgarstjórnarkosninga 2026 hefst fimmtudaginn 17. apríl.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á síðu um borgarstjórnarkosningar 2026.