Kröftug uppbygging íbúða í nýrri húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035

Róbert Reynisson
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í rauðri dragt. Stendur lengst til hægri á sviði, fjölmenni fylgist með henni tala í Tjarnarsal. Húsnæðisfundur. Texti á tjaldi á bakvið hana.

Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035 var kynnt á húsnæðisfundi borgarstjóra sem fram fór í Ráðhúsinu í dag.

Reykjavík hefur vaxið hratt og á síðustu árum hafa að meðaltali verið byggðar yfir 1.100 íbúðir á ári, mestmegnis í grónum hverfum þar sem innviðir eru þegar fyrir hendi. Meðal markmiða í nýrri áætlun er að stuðla áfram að kröftugri uppbyggingu íbúða með byggingu allt að 16 þúsund nýrra íbúða á næstu tíu árum. Þá er stefnt að því að 35% húsnæðis verði óhagnaðardrifið til framtíðar litið, framboð leiguhúsnæðis fyrir tekjulægri hópa verði aukið og að ný byggingarsvæði verði skilgreind, svo fátt eitt sé nefnt.

Húsnæðisáætlanir Reykjavíkur eru settar fram til að mæta áskorunum á húsnæðismarkaðnum og markmiðum Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum. Þær byggja á stefnumörkun Reykjavíkurborgar á sviði húsnæðismála og á lagaumgjörð og greiningum á stöðu á húsnæðismarkaðinum.

Húsnæðisáætlun skilgreinir helstu byggingarsvæði í Reykjavík, lóðaúthlutun, fjárframlög til húsnæðismála, samvinnu við húsnæðisfélög sem byggja án hagnaðarsjónarmiða, kaupáform Félagsbústaða og uppbyggingu borgarinnar á félagslegum húsnæðisúrræðum.

Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035 var samþykkt á fundi borgarráðs í gær en fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar þriðjudaginn 14. apríl.

Húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026- 2035.

Fjölmenni á húsnæðisfundi borgarstjóra í Tjarnarsal.
Húsnæðisfundur borgarstjóra í Ráðhúsinu í dag var vel sóttur.