Köngulóarsilki, týndir munir og jarðvegshreinsistöð í Hringiðu

Verkefni Hringiðu kynnt í ráðhúsi Reykjavíkur

Hringiða, viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir, stóð fyrir viðburði í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær. Teymin sjö sem taka þátt kynntu fjölbreyttar lausnir sem stuðla að sjálfbærni og umhverfisvernd. Þar kennir margra grasa, allt frá því að búa til köngulóarsilki til framleiðslu á vinylplötum úr sykurrófum. 

Kynningar á verkefnum í Hringiðu 2026

Teymin eru: 

  • Araxni, sem framleiðir líftæknibúið köngulóarsilki í stað plasts
  • E-LÍSA, hugbúnaðarlausn sem hámarkar orkuvinnslu í jarðvarmaþróun
  • IORDEN, sjálfvirkur gæðastjóri fyrir matvælaframleiðendur
  • Loopable, sem tætir ónýtan textíl og breytir honum í hágæða prjónagarn
  • Ratatag, QR-kóðakerfi sem tengir saman eigendur og finnendur týndra muna
  • Soil Lagoon, sem áformar fyrstu jarðvegshreinsistöð Íslands
  • Thermal Beets Records, sem framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað PVC-plasts.
Alexandra Briem, formaður borgarráðs, opnaði viðburðinn

Alexandra Briem, formaður borgarráðs, opnaði viðburðinn og talaði um mikilvægi þess að borgin styðji við nýsköpun og grænar lausnir. „Borgir keppa ekki lengur bara um störf og fyrirtæki, heldur um gott fólk og góðar hugmyndir. Við viljum að Reykjavík sé borgin þar sem hugmyndir fæðast, vaxa og dafna“, sagði Alexandra.  Reykjavíkurborg hefur frá upphafi verið bakhjarl Hringiðu og samstarfið borgarinnar og KLAK hefur verið lykilþáttur í að gera hraðalinn að veruleika.

Teymin sjö hafa aðeins verið í hraðlinum í tvær vikur af sex. Þau kynntu verkefnin sín með örkynningum og í framhaldi var boðið til samtals við gesti.