Innkaupastefna og innkaupareglur samþykktar
Endurskoðuð innkaupastefna og innkaupareglur fyrir Reykjavíkurborg voru samþykktar í borgarstjórn í gær. Tilgangurinn er meðal annars að stuðla að heilbrigðri samkeppni og verðlauna góða viðskiptahætti.
Stýrihópur um endurskoðun innkaupastefnu og innkaupareglna fékk það hlutverk að ljúka við endurskoðun innkaupastefnu sem unnið hefur verið að undanfarin misseri. Í því felst meðal annars að auka þarf eftirlit með innkaupum og innkaupaheimildum, tryggja ráðdeild í rekstri og framkvæmdum Reykjavíkurborgar og fylgja Græna planinu, sem er yfirstefna borgarinnar. Innkaup Reykjavíkurborgar eru yfirgripsmikil og geta haft mikil áhrif á samfélagið, mannréttindi og loftslagsbreytingar um leið og mikilvægt er að sýna ráðdeild í rekstri. Meðal verkefna stýrihópsins var einnig endurskoðun innkaupareglna og gerð mælikvarða og innleiðingaráætlunar.
Ábyrgðarhlutverk að vera stór innkaupaaðili
Endurskoðuð innkaupastefna Reykjavíkurborgar byggir á fjórum innkaupagildum; ábyrgð, hagkvæmni, gagnsæi og nýsköpun í innkaupum. Tilgangur hennar er að vera hvati til og stuðla að heilbrigðri samkeppni á markaði, verðlauna góða viðskiptahætti og skapa aðstæður fyrir aukna grósku í framboði á vörum og þjónustu sem tryggja sameiginlega hagsmuni almennings nú og til framtíðar. Reykjavíkurborg er einn stærsti opinberi innkaupaaðilinn á íslenskum markaði og er nýrri innkaupastefnu ætlað að skapa ramma um það ábyrgðarhlutverk sem því fylgir.
Nýjar innkaupareglur voru samþykktar vorið 2024 og nú þegar komin er reynsla á þær þótti rétt að uppfæra örfá atriði í samræmi við verklag og lög. Þá verður skerpt á eftirlitshlutverki innkaupa- og framkvæmdaráðs.