Hver verður Reykvíkingur ársins 2026?

Reykjavík loftmynd

Óskað er eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar í borgarsamfélaginu. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.

Reykvíkingur ársins hefur verið útnefndur árlega frá árinu 2011. Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavík og íbúum borgarinnar til góða á einhvern hátt.

Þetta gæti verið einhver sem hefur haft jákvæð áhrif á  borgarlífið, sýnt nærumhverfinu alúð eða gert mikið gagn í borginni á undanförnum árum með einhverjum hætti.

Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is.

Frestur til að senda inn tilnefningar rennur út  fimmtudaginn 11. júní 2025.

Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.