Hús dans- og varnaríþrótta í Breiðholti

Gerðin í Efra-Breiðholti.

Áformað er að byggja nýtt hús fyrir dans- og varnaríþróttir í Breiðholti sem ætlað er að skapa öflugan vettvang fyrir íþróttir og samfélagsstarf í hverfinu.

Gert er ráð fyrir að húsið rísi við Gerðuberg sem er í nágrenni við núverandi íþrótta- og þjónustukjarna og mun þannig styrkja svæðið í heild sem miðsvæði í Efra-Breiðholti. Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt að hefja undirbúning og hugmyndaleit fyrir verkefnið.  

Hugmyndaleit að hefjast 

Framundan er tvíþætt ferli þar sem fyrst verður unnin ítarleg greining á verkefninu. Ráðgjafar munu í samvinnu við hagsmunaaðila, móta framtíðarsýn hússins og skilgreina hugmyndir um notkun, stærð, umfang og rekstrargrundvöll.  

Að því loknu fer fram hugmyndaleit þar sem óskað verður eftir þátttöku 3-5 hönnunarhópa sem vinna tillögur að útfærslu byggingarinnar. Ein tillaga verður síðan valin til áframhaldandi þróunar. 

Gert er ráð fyrir að undirbúningur og hugmyndaleit hefjist nú í apríl 2026. 

Þessi áform eru að mínu mati gríðarlega mikilvægt skref til að efla í senn íþróttastarfið og samfélagið í Breiðholti. Staðsetning við Gerðuberg, nálægt núverandi íþrótta- og þjónustukjarna, styrkir svæðið sem lifandi og samofið miðsvæði í Efra-Breiðholti. Með þessu fjölgum við tækifærum fyrir hreyfingu, þátttöku og samveru íbúa, segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.