Heitur matur í hádeginu á ný í félagsmiðstöðvum borgarinnar

Yfirlitsmynd af Reykjavík, Hallgrímskirkja í miðju myndar.

Gerður hefur verið samningur við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu allt að 1000 máltíða á dag sem dreift verður í heimahús, félagsmiðstöðvar og þjónustuíbúðir velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. 

Samningurinn gildir í tvo mánuði á meðan unnið er að gerð lengri samnings. Frá 2. mars verður því aftur hægt að kaupa heitan mat í hádeginu á félagsmiðstöðvum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. 

Nauðsynlegt að forgangsraða þjónustu

Þann 29. janúar síðastliðinn samþykkti borgarráð að ráðist yrði í gagngerar endurbætur á eldhúsinu á Vitatorgi. Til stóð að loka eldhúsinu í maí en þegar listería kom upp í eldhúsinu var ákveðið að flýta framkvæmdum og loka strax. 

Lögð var áhersla á að fólk fengi áfram heimsendan mat, sem íbúar þjónustuíbúða og dagdvala hafa einnig fengið. Ekki var hins vegar hægt að framreiða heitan mat í félagsmiðstöðvunum fyrr en búið væri að gera samning við fyrirtæki sem gæti tekið við eldamennskunni. Þar hefur þó verið léttur matur í boði, á borð við skyr og samlokur. 

Gleðiefni að geta hafið matarþjónustu á ný

Það er mikið gleðiefni að geta hafið matarþjónustu á ný í félagsmiðstöðvum, að sögn Rannveigar Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs. „Það er fastur punktur í tilveru margra að fá sér heitan mat í hádeginu á félagsmiðstöðvum okkar og því gerðum við okkur fulla grein fyrir því að þetta væri óþægileg staða fyrir margt fólk. Við höfum verið að vinna hörðum höndum að því að leysa hratt úr málinu en það er ekki einfalt verk að hefja framreiðslu á 1000 matarskammta daglega. Við erum því afar ánægð með að Krydd og kavíar hafi geta stokkið inn í þetta umfangsmikla verkefni með svo skömmum fyrirvara.“

Þar til 2. mars verður áfram hægt að fá einfalda næringu í félagsmiðstöðvunum, á borð við skyr, samlokur eða annað sem ákveðið er á hverjum stað fyrir sig. Þau sem eiga erfitt með að útbúa mat sjálf geta óskað eftir að fá heimsendan mat í gegnum mínar síður Reykjavíkurborgar. 

„Við hjá Krydd og Kavíar erum afar stolt af því að vera treyst fyrir jafnmikilvægu verkefni og matarþjónusta í félagsmiðstöðvum borgarinnar er. Leiðarljós okkar er að framreiða gæðamáltíðir af vandvirkni og fagmennsku með hag viðskiptavina í fyrirrúmi,“ segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis, rekstraraðila Krydd og Kavíar.

Upplýsingar um félagsstarf og matarþjónustu í Reykjavík.

Upplýsingar um heimsendan mat í Reykjavík.