Hamingjuganga á morgun
Miðvikudaginn 25. mars klukkan 12:00 verður farið í hamingjugöngu þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu, geti dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapið okkar.
Til stóð að gangan færi fram á Alþjóðlega hamingjudeginum, sem haldinn er hátíðlegur 20. mars ár hvert, en Sameinuðu þjóðirnar stofnuðu til hans til að minna á mikilvægi hamingju og velsældar sem almennra markmiða í lífi fólks. Dagurinn leggur áherslu á geðheilsu, samkennd og félagsleg tengsl, oft með málþingum eða viðburðum sem tengjast heimsmarkmiðum SÞ. Vegna veðurs þurfti að fresta göngunni og fer hún því fram á morgun.
Þann 21. mars er svo alþjóðlegur dagur skóga til að vekja athygli á mikilvægi hvers kyns skóga og trjáa utan skóglendis. Skógar hafa verið ofarlega í allri alþjóðlegri umræðu frá því að heimsmarkmiðin til 2030 um sjálfbæra þróun voru sett og Parísarsamkomulagið samþykkt.
Hamingjan og kraftur trjánna
Í hamingjugöngunni verður bæði hamingjunni og krafti trjánna fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu; gönguferð í skógi eða það af hafa útsýni á tré úr glugga getur dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapið okkar. Það mætti því segja að tré í borgarumhverfinu séu ómissandi þáttur í hamingjuríkara mannlífi.
Gangan hefst í Fógetagarði og verður gengið að Vonarstræti, um Alþingisgarð, Hallargarð og svo frá Hljómskálagarðinum yfir Skothúsveginn og meðfram Tjarnargötunni og endum með örlitlu hoppi og híi við Ráðhúsið.
Stoppað verður við söguleg og merkileg tré, og á meðan á göngunni stendur verður staldrað við og viðstöddum gefinn tími til að anda, hlusta, njóta og fanga hamingjuna – jafnvel í miðri borginni.
Þátttakendur eru beðnir um að klæða sig eftir veðri. Aðgangur ókeypis.