Hækkun á styrk svifryks
Styrkur svifryks (PM10) hefur mælst hár í loftgæðamælistöðum í borginni í morgun. Uppruni ryksins er frá umferð en þar sem götur eru þurrar og hægur vindur þyrlast það frekar upp og helst á lofti. Klukkan 12.00 var gildið fyrir PM10 93,4 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg en til samanburðar má benda á að sólarhringsheilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Rykbundið var aðfaranótt miðvikudags en vegna aðstæðna nægir rykbindingin ekki til að halda mengun innan marka. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar.
Gert er ráð fyrir hægum vindi á morgun og því hætta á frekari mengun þá. Lítil úrkoma er í kortunum þar til um miðja næstu viku. Skoðuð verður frekari rykbinding til að draga úr mögulegri mengun.
Viðkvæmir forðist útivist í lengri tíma
Þau sem eru viðkvæm fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu. Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins ef unnt er, til dæmis geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Skorað er á fyrirtæki að hvetja starfsfólk til að vinna fjarvinnu á svifryksdögum sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu.
Fínasta gerð rykagna
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin en heilsuverndarmörk miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring fyrir PM10 (svifagnir um 10 míkrógrömm að stærð). Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót - aðallega frá díselbruna, jarðvegsagnir, salt, aska og fleira.