Götumarkaður í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi
Það mun allt iða af lífi þegar Listasafn Reykjavíkur opnar port Hafnarhússins og breytir því í spennandi götumarkað dagana 15. og 16. ágúst.
Boðið verður upp á markaðsstemningu í hjarta borgarinnar þegar portið í Hafnarhúsi mun fyllast af yfir 40 spennandi og fjölbreyttum sölubásum með vintage-vörum, antík úr geymslunni, handverki, hönnun, bókum, vínylplötum og einstökum dýrgripum.
Fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta en sérstakt tombólu- og sölusvæði verður ætlað börnum sem vilja koma með sitt eigið dót á tombólu og reyna á söluhæfileikana. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega á tomóblusvæðið heldur bara mæta til leiks.
Götumarkaðurinn er haldinn í samstarfi við Visteyri og er ætlaður öllum sem hafa gaman af skapandi stemningu, hringrásarhagkerfinu og því að uppgötva óvænta fjársjóði í skemmtilegu umhverfi.
Á meðal seljenda eru Visteyri, NOWHERE, Wabi Sabi, Munir, Góði hirðirinn, Mino, Björkin Vintage og fleiri og fleiri!
Markaðurinn verður opinn frá kl. 12:00 til 17:00 helgina 15.-16. ágúst í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi við Tryggvagötu 17.
Öll velkomin!