Gott sumar Vinnuskólans að baki
Starfsári Vinnuskóla Reykjavíkur lauk um miðjan ágúst og stóðu nemendur sig með prýði. Hópur sem tilheyrir Lúðrasveitum Reykjavíkur þakkaði fyrir sig með því að spila nokkur vel valin lög fyrir starfsfólk borgarinnar ásamt gestum og gangandi vegfarendum í blíðskapaveðri. Þau höfðu glatt gesti og gangandi með spilamennsku sinni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í sumar.
Fegra hverfi borgarinnar
Það munar um nemendur Vinnuskólans því þau leggja sitt af mörkum við fegrun borgarinnar. Alls voru yfir 3900 nemendur skráðir í vinnuskólann í sumar og sinntu þau garðyrkjuverkefnum um alla borg ásamt því að starfa á frístundaheimilum, leikskólum, hjá íþróttafélögum, skátum, félagasamtökum og öðrum samstarfsaðilum.
Hópur 17 ára nemenda var einnig að störfum í 8 vikur í sumar. Þau voru meðal annars í görðum í Einarssafni, Breiðholtsskóla og Lauganesskóla. Þau voru mjög ánægð með sumarið og starfið hjá Vinnuskólanum.
Nemendur unnu sín störf í öllum hverfum borgarinnar og voru með starfsstaði inni í grunnskólum. Þau fengu einnig fræðslu um fjármálalæsi og jafningjafræðslan fór fram í skólunum. Þá fengu þau fræðslu hjá starfsfólki Listasafns Reykjavíkur.
Óhætt er að segja að starfið hafi verið fjölbreytt og alls konar í boði fyrir nemendur til að prófa sig áfram í í Vinnuskólanum.