Gleðilega Hinsegin daga 2026

Setning Hinsegin daga við Ráðhús Reykjavíkur. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, ásamt fulltrúum Hinsegi daga.
Setning Hinsegin daga við Ráðhús Reykjavíkur

Hinsegin dagar hefjast í dag og fór setning hátíðarinnar fram við Iðnó klukkan 12. Hinsegin dagar er borgarhátíð og er ein litríkasta hátíð ársins og stendur hún til 9. ágúst næstkomandi. 

Helga Haraldsdóttir formaður Hinsegin daga tók fyrst til máls og rifjaði upp söguna og setti formlega hátíðina. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, flutti stutt ávarp.

Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga við setninguna í dag.
Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga í ár, Fram á við, á setningunni við Iðnó í dag

Að því því loknu var Pride fáninn dreginn að húni á flaggstöngunum á göngubrúnni og Guðjón Þorgils flutti svo lag Hinsegin daga í ár, Fram á við, sem er samið af honum, Ingu Auðbjörgu og Axel Inga. 

Krítað á stéttina í tilefni Hinsegin daga
Krítað á stéttina í tilefni Hinsegin daga

Gestum bauðst að taka þátt í föndri og kríta falleg skilaboð á stéttina fyrir framan Pride Centre í Iðnó þar sem Hinsegin Kaupfélagið er á annarri hæð.  

Krítað á stéttina í tilefni Hinsegin daga
Kaupfélag Hinsegin daga er á annarri hæð í Iðnó.

Framundan er stútfull dagskrá með litríkum, fræðandi og skemmtilegum viðburðum! 

Gleðigangan hápunktur Hinsegin daga

Í gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur áunnist í baráttunni.

Gleðigangan á leið í Hljómskálagarðinn
Gleðigangan á leið í Hljómskálagarðinn

Gleðigangan í ár verður gengin laugardaginn 8. ágúst. Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.

Öll velkomin!

Gleðilega Hinsegin daga!