Gleðilega Barnamenningarhátíð!
Barnamenningarhátíð var sett með pompi og prakt í Hörpu í morgun. Dagana 20.-26. apríl verður boðið upp á viðburðaríka dagskrá fyrir alla fjölskylduna og allt ókeypis.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, setti hátíðina formlega og fékk börnin í salnum til liðs við sig og bað þau um að gera bylgju með sér. Því næst tók við skemmtidagskrá sem byrjaði á að Strengjakvartett Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ballettsýningu.
Sýnt var brot úr leikritinu Galdrakarlinn í Oz sem nú er á fjölum Borgarleikhússins. Hringleikur lék sirkuslistir sínar og dansarar frá dansskóla Brynju Péturs dönsuðu af miklum móð.
VÆB flutti svo lag Barnamenningarhátíðar, Sama hver það er, sem þeir bræður Matthías og Halfdán sömdu með nemendum í fjórða bekk í Reykjavík. Krakkarnir tóku vel undir, dönsuðu í takt við lagið og fagnaðarlátum ætlaði aldrei að linna.
Hægt er að horfa á setningu hátíðarinnar á RÚV 2. Framundan er fjölbreytt ókeypis dagskrá fyrir öll og um að gera að njóta.
Góða skemmtun!
Öll velkomin!