Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi lokað

Mynd af Vitatorgi séð utan frá
Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur verið lokað eftir að bakterían Listeria monocytogenes fannst þar við reglubundna sýnatöku. Á Vitatorgi eru framleiddar meira en 900 máltíðir á degi hverjum, sem fara ýmist í heimsendingu eða eru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs.
Ekki verður þjónustuskerðing hvað varðar heimsendan mat, en því miður verður ekki hægt að bjóða upp á  heitan mat í hádeginu á eftirfarandi félagsmiðstöðvum á morgun: Vitatorgi, Borgum, Hraunbæ, Hæðargarði, Árskógum, Hvassaleiti, Dalbraut 18–20, Aflagranda og Bólstaðarhlíð.
 
Allt kapp verður lagt á að framreiddur verði matur í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs þegar líður tekur á vikuna. Gestum félagsmiðstöðvanna verður tilkynnt um nýtt fyrirkomulag  eins fljótt og auðið er.

Bílstjórar ná í heimsendan mat

 
Strax á morgun verður matur, framleiddur í öðru eldhúsi, sendur þeim sem fá heimsendan mat. Þau sem fengu heimsendan mat frá framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi í dag, 2. febrúar, eru beðin um að farga honum. Bílstjórar velferðarsviðs eru nú á ferðinni til að sækja máltíðirnar og sjá til þess að fólk sé meðvitað um stöðuna.

Getur valdið sýkingum hjá viðkvæmum einstaklingum

Listería getur valdið matarsýkingum, einkum hjá viðkvæmum einstaklingum. Viðkvæmir einstaklingar eru aldraðir, ófrískar konur, ung börn og fólk með skert ónæmiskerfi. Einkenni geta komið fram allt að 3 vikum eftir neyslu.
 
Mikilvægt er að bregðast við finni fólk fyrir einkennum og leita strax til læknis. Einkenni geta verið mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur.
 

Leggjum okkur fram við að lágmarka óþægindin fyrir notendur

 
Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir allt kapp lagt á að leysa hratt úr stöðunni. „Við erum að gera allt sem við getum til að lágmarka óþægindin sem af þessu hljótast. Okkur hafa ekki borist upplýsingar um alvarleg veikindi á þessari stundu en til að gæta ítrustu varúðar gripum við strax til ráðstafana.“