Framkvæmdir við Hlemmtorg og uppbygging Borgarlínu
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að hefja innkaupaferli vegna framkvæmda við Hlemmtorg og Borgarlínu um Hlemm. Um er að ræða umfangsmikið verkefni sem felur í sér endurgerð gatnamóta og göturýmis, nýtt torgsvæði og uppbyggingu Borgarlínu á svæðinu.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í apríl 2026 og er stefnt að því að þeim verði lokið fyrir árslok 2027.
Heildarkostnaðaráætlun verkefnisins er 1.190 milljónir króna. Þar af er áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar 500 milljónir króna. Um sameiginlegt framkvæmdaútboð er að ræða með Betri samgöngum og Veitum.
Framkvæmdin felur meðal annars í sér:
- Endurgerð gatnamóta Snorrabrautar og Hverfisgötu.
- Endurgerð götukafla á Snorrabraut, frá Bríetartúni að Hverfisgötu.
- Gerð torgsvæðis norðan borgarlínuáss og gerð torgsvæðis sunnan borgarlínuáss frá Snorrabraut og austur fyrir Hlemm mathöll.
- Gerð Borgarlínu um torgsvæði Hlemms og uppsetningu tveggja stoppistöðva Borgarlínu á svæðinu.
- Endurnýjun fráveitulagna, vatnsveitu- og hitaveitulagna, raflagna, fjarskiptalagna og umferðarljósa.
Bætt aðstaða fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi
Með framkvæmdunum verður Hlemmtorg mótað sem sterkur borgarkjarni með auknu rými fyrir gangandi og hjólandi og bættri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur sem verða eina akandi umferðin um torgið. Umhverfið í kring verður gönguvænna og meira aðlaðandi fyrir fjölbreytt mannlíf. Þá verður leið hjólandi fólks stórbætt um svæðið ásamt því að sköpuð verður hágæða aðstaða fyrir hjólreiðar á svæðinu m.a. aðstaða til viðgerða og geymslu hjóla.
Lögð er mikil áhersla á að gera svæðið gróðursælt með fjölbreyttum gróðri en þar verða einnig ofanvatnsbeð, sem eru sérstök gróðurbeð sem taka á móti ofanvatni. Nú þegar er búið að framkvæma nokkra áfanga á Hlemmi sem hefur strax gefið svæðinu nýja ásýnd með fallegu heildaryfirbragði torgs, setsvæðum og gróðri.