Fjölbreytt og umfangsmikil verkefni framundan

Séð yfir Reykjavík

Ráðist verður í fjölbreytt og umfangsmikil verkefni á næstu árum í Reykjavík með áherslu á uppbyggingu innviða, húsnæðis, umhverfismála og grænar samgöngur. Þetta kemur fram í fjárfestingaráætlun borgarinnar sem gefur yfirsýn yfir helstu verkefni sem eru í undirbúningi eða framkvæmd.

Heildarfjárfestingar Reykjavíkurborgar nema 74,9 milljörðum króna á árinu. Fjárfestingaráætlunin dregst saman um 1,7 milljarða króna frá fyrra ári en áfram er lögð áhersla á samfélagslega mikilvæga innviði og sjálfbæra uppbyggingu.

Fjölgun hjúkrunarrýma og uppbygging skóla

Áætlað er að verja um 14 milljörðum króna í samfélagslega innviði. Þar ber hæst viðhald og uppbygging leik- og grunnskóla, auk fjárfestinga í íþrótta- og tómstundaaðstöðu. Einnig er gert ráð fyrir fjármunum til menningarmála, lýðheilsuverkefna og verkefna á vegum velferðarsviðs, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma og stækkun Konukots.

Meðal einstakra verkefna sem eru framundan eru nýr leikskóli við Fossvogsblett, Skólaþorpið í Laugardal og Skólabrú í Vogabyggð, auk áframhaldandi viðhalds sundlauga borgarinnar.

Uppbygging í íbúðar- og atvinnuhverfum

Fjárfestingar í íbúðahverfum nema 1,8 milljörðum króna og ná meðal annars til Ártúnshöfða, Vogabyggðar, Bryggjuhverfis, Úlfarsárdals, Hlíðarenda, Halla og Kelda. Þá er gert ráð fyrir 805 milljónum króna í uppbyggingu atvinnusvæða.

Húsnæðisuppbygging er lykilþáttur í framtíðarsýn borgarinnar. Undanfarin fimm ár hafa verið byggðar um 1100–1200 íbúðir á ári og gert er ráð fyrir að um 35% nýs íbúðarhúsnæðis verði á vegum óhagnaðardrifinna félaga eða í formi félagslegs leiguhúsnæðis. Í húsnæðisáætlun til næstu tíu ára eru skilgreind þrjú lykilsvæði sem eru Ártúnshöfði, Keldur og Hallar. Samtals geta þessi svæði rúmað tugþúsundir íbúða ásamt atvinnuhúsnæði og skólahverfum. 

Fjárfestingar í umhverfismálum

Um 1,8 milljörðum króna verður varið í umhverfismál og græn svæði. Meðal verkefna eru endurnýjun sorpbifreiða, uppbygging grenndarstöðva, verkefni tengd haftengdri upplifun ásamt nýjum kirkjugarði við Úlfarsfell.

Í grænar samgöngur verður varið 3,8 milljarðar króna. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fjárfestingum í malbikun, hjólastígum og umferðaröryggi. Þá verður unnið að endurnýjun og bættu aðgengi að biðstöðvum Strætó.