Fjölbreytt dagskrá á Sjómannadaginn
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 7. júní næstkomandi. Boðið verður upp á skemmtidagskrá á hátíðarsvæðinu úti á Granda og víðar.
Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1938 með það að markmiði að heiðra íslenska sjómenn og mikilvægi sjómennskunnar fyrir þjóðina.
Dagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land með fjölbreyttum viðburðum: sjómannamessum, kappróðrum og minningarathöfnum þar sem kransar eru lagðir til heiðurs látnum sjómönnum. Í sjávarbyggðum má finna fjölskylduhátíðir og skemmtanir sem minna okkur á tengsl þjóðarinnar við sjóinn og mikilvægi hans í sögu okkar.
Í Reykjavík verður haldin vegleg dagskrá þar sem boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna.
BMX brós sýna listir sínar, Bjössi brunabangsi, bryggjusprell, furðufiskar, Húlla Dúlla, Íþróttaálfurinn og Silla stirða og margt fleira.
Ísfisktogarinn Viðey mun liggja við bryggju þar sem gestum og gangandi er boðið að fara um borð og skoða. Björgun úr sjó, línubrú og tónleikar.
Til hamingju með daginn sjómenn!
Góða skemmtun!