Fjölbreytt dagskrá í haustfríi grunnskóla í Reykjavík
Haustfrí grunnskóla í Reykjavík verður dagana 22.–26. október og víða um borgina verður boðið upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir börn og fjölskyldur. Á söfnum, bókasöfnum og víðar má finna skapandi smiðjur, ratleiki, föndur, leiki og fjölskylduviðburði. Fullorðnir í fylgd með börnum fá frítt inn á söfn borgarinnar í haustfríinu.
Á fyrsta vetrardegi, 24. október, verður Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn kominn í hrekkjavökubúning. Þar geta gestir meðal annars farið í drauga- og skrímslagöngu þar sem þjóðsagnaverur lifna við, farið um dularfullt völundarhús og tekið þátt í skapandi grímusmiðju. Einnig verður sérstök hrekkjavökudagskrá laugardaginn 31. október.
Leikir og fjör á bókasöfnunum
Á bókasöfnum borgarinnar verður boðið upp á fjölbreytta viðburði svo sem hrekkjavökuföndur, spilastundir, ratleiki, ljósmynda- og plötusnúðasmiðjur, krakkadiskó og skuggaleikhús. Barnabókahöfundurinn Bergrún Íris heimsækir til að mynda borgarbókasafnið í Klébergi fimmtudaginn 22. október.
Smiðjur og ratleikir á söfnum borgarinnar
Borgarsögusafn Reykjavíkur býður upp á skemmtilega dagskrá í haustfríinu. Árbæjarsafn stendur fyrir kertaluktasmiðju þar sem fjölskyldur geta endurnýtt glerkrukkur og búið til falleg ljós fyrir skammdegið. Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur verður skapandi teiknismiðja tengd sýningum safnsins, á Landnámssýningunni geta börn tekið þátt í ratleik með lítilli gulri kisu og smíðað eigin báta, og á Sjóminjasafninu verður netasmiðja þar sem gestir geta kynnst netagerð og búið til sjávardýr.
Haustfríið er jafnframt kjörið tækifæri til að njóta útivistar, heimsækja sundlaugar borgarinnar eða skoða þau fjölmörgu útivistarsvæði sem Reykjavík hefur upp á að bjóða.