Fallið frá byggingu unglingaskóla aftan við Skautahöllina
Borgarráð samþykkti í morgun að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Huga á að annarri staðsetningu og fara í samráðsferli að nýju með helstu hagaðilum í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu.
Starfshópur skoði staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja í Laugardal
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði fram tillöguna í morgun. „Með uppbyggingu unglingaskóla í Laugardal verður til menntastofnun sem verður áhrifavaldur í lífi ungmenna í hverfinu í marga áratugi og setur mark sitt á allt annað skólastarf í Laugardalnum. Slík framkvæmd er af þeirri stærðargráðu að hún þarf að vera vönduð og standast tímans tönn,“ segir Heiða Björg.
Nú verða endurskoðaðar fyrri sviðsmyndir sem lagðar voru fram í skýrslu starfshóps um undirbúning framkvæmda árið 2023. Skipaður verður starfshópur sem kallar til helstu hagaðila í Laugardal til samráðs um framtíðarsýn.
„Því miður hefur komið í ljós að fyrri ákvarðanir voru einfaldlega ekki á nægilega traustum grunni byggðar," segir borgarstjóri "og þess vegna er nauðsynlegt að vinna málið betur. Þess vegna var það tillaga mín að hætta við fyrri áform og endurskoða staðarval í betra samkomulagi við unglingana, foreldra, íbúa og aðra hagaðila í Laugardalnum.“