Evrópsk samgönguvika 2026

Sex manneskjur að hjóla í röð á hjólastíg í skógi.

Árleg evrópsk samgönguvika stendur yfir 16.-22, september. Vikan er haldin til að hvetja fólk á ferð til að nota fjölbreytta ferðamáta sem eru í senn hagkvæmir og heilsusamlegir.​

Samgöngur fyrir öll

Frá árinu 2002 hafa borg og bæjarfélög á Íslandi tekið þátt í samstilltu átaki sveitarfélaga í Evrópu til að ýta undir sjálfbærar samgöngur. Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið hefur umsjón með vikunni á Íslandi. Þema vikunnar að þessu sinni er Samgöngur fyrir öll.

Fjöldi viðburða

Viðburðir verða haldnir á vegum félagasamtaka og sveitarfélaga, en nálgast má upplýsingar um dagskrá vikunnar hér á heimasíðum sveitarfélaganna, auk Facebook-síðu vikunnar.

Samgönguráðstefna

Meðal þeirra viðburða sem eru á dagskrá að þessu sinni má nefna Samgönguráðstefnu ITS sem fer fram á upphafsdegi samgönguviku, 16. september.

Auðlindahringur

Þá býður Orkuveitan til Auðlindahrings í Elliðaárdalnum þann 17. september í tilefni af samgönguviku og þennan sama dag kl. 16 verða BMX Bros með námskeið og sýningu á Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ.

Opið hús

Betri samgöngur og Almenningssamgöngur, áður Strætó, verða með opið hús 18. september frá kl. 14-16 í nýjum húsakynnum sínum í Hafnarstræti 7.

Frestað: Ný hjóla- og göngubrú

Formleg vígsla nýrrar hjóla- og göngubrúar yfir Elliðaár við Dimmu fer síðan fram - ákveðið síðar.

Bíllausi dagurinn

Vikan endar svo á Bíllausa deginum, 22. september, þegar almenningur er hvattur til þess að skilja bílinn eftir heima og til að auðvelda það verður frítt í strætó á höfuðborgarsvæðinu.

Umferðarþing

Þennan sama dag mun Samgöngustofa standa fyrir Umferðaþingi þar sem athyglinni verður beint að unga fólkinu og umferðinni.