Drög að nýrri stefnu í málaflokki fatlaðs fólks komin í samráðsgátt

Reykjavík séð frá Hlíðum og út að Esju

Drög að nýrri stefnu í málaflokki fatlaðs fólks fyrir árin 2026–2036 er komin í samráðsgátt Reykjavíkurborgar. Gáttin er notuð til þess að kalla eftir hugmyndum og afstöðu borgarbúa til ýmissa verkefna hjá borginni.

Öll geta sent inn álit sitt í gegnum samráðsgáttina og eru borgarbúar hvattir til að kynna sér stefnuna og veita henni umsögn. Að auki fengu á fjórða tug stofnana, ráðuneyta, félaga- og hagsmunasamtaka, íþróttafélaga boð um þátttöku.   

Um er að ræða stefnumótun sem er ætlað að ná fram framtíðarsýn í málaflokknum, forgangsraða verkefnum og skipuleggja þannig að velferðarstefna borgarinnar, lög og reglugerðir sem og samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði í forgrunni þjónustu við fatlað fólk.

Stuðningur, búseta, sjálfstætt líf, aðgengi og atvinnumál

Til að ná markmiðum stefnunnar er lögð áhersla á eftirfarandi þætti: 

  • Stuðning: Stuðningur við fatlað fólk miðist við fjölbreyttar þarfir notenda sem byggist á valdeflingu, þátttöku og einstaklingsmiðaðri nálgun.
  • Búsetu og húsnæði: Öll búsetuform styðji við sjálfstæði, valfrelsi og þátttöku í samfélaginu.
  • Sjálfstætt líf: Sjálfstætt líf er grunnstef samnings Sameinu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Það felur í sér inngilt líf, með áherslu á rétt alls fatlaðs fólks til að lifa í samfélaginu með sömu valkosti til jafns við aðra, að sjálfstæði og sjálfræði sé virt ásamt frelsi til þess að taka eigin ákvarðanir.
  • Aðgengi í sinni víðustu mynd: Til að tryggja að fatlað fólk njóti mannréttinda og grundvallarfrelsis til jafns við aðra þarf að vera til staðar aðgengi að samfélaginu, þjónustu, borgarrými, upplýsingum, námi og vinnu.
  • Atvinnumál: Vinna og virkni verði fjölbreytt, sveigjanleg og taki mið af ólíkum hæfileikum, áhugasviðum og lífsstíl einstaklinga.

Smelltu hér til að fara inn á samráðsgáttina og rýna drög að stefnu Reykjavíkur um málaflokk fatlaðs fólks 2026–2036.