Drög að endurskoðaðri málstefnu komin í samráðsgátt
Drög að endurskoðaðri málstefnu Reykjavíkurborgar 2026–2030 eru komin í samráðsgátt Reykjavíkurborgar. Gáttin er notuð til að kalla eftir hugmyndum og afstöðu borgarbúa til ýmissa verkefna hjá borginni.
Öll geta sent inn álit sitt í gegnum samráðsgáttina og eru borgarbúar og aðrir hvattir til að kynna sér stefnuna og veita henni umsögn. Að auki fengu ýmsir hagaðilar boð um þátttöku.
Um er að ræða endurskoðun málstefnu sem samþykkt var árið 2017. Ákveðið var að óska eftir umsögnum í gegnum samráðsgátt, enda málefnið með víða skírskotun og þjóðfélagsaðstæður afar breyttar síðan málstefnan var samþykkt.
Við endurskoðun stefnunnar var meðal annars horft til leiðbeininga Íslenskrar málnefndar og annarrar stefnumörkunar Reykjavíkurborgar. Þá var leitað til ýmissa sérfræðinga og hagaðila. Markmið starfshópsins var að móta einfalda og aðgengilega stefnu, með útskýringum og ítarefni í greinargerð sem fylgir stefnunni auk þess að móta skýra aðgerðaáætlun sem byggði á stefnunni sjálfri og ákalli hagaðila um þróun í málaflokknum.
Í samráðsgáttinni eru stefnan sjálf, greinargerðin og aðgerðaáætlunin á íslensku, ensku og pólsku. Samráðið stendur yfir í tvær vikur eða til 1. maí.