Byggingaréttur í Suðurhólum - tilboðsfrestur framlengdur

Breiðholt loftmynd

Reykjavíkurborg hefur framlengt tilboðsrétt til sölu byggingarréttar á íbúðarhúsalóðum við Suðurhóla 27 í Breiðholti. 

Á umræddri lóð er gert ráð fyrir raðhúsi og sérhæðum á tveimur til þremur hæðum með allt að 40 íbúðum. 

Nánari upplýsingar um lóðina og útboðsskilmála er að finna í úthlutunar- og útboðsskilmálum sem birtir eru á útboðsvefnum. Þá er vísað til meðfylgjandi deiliskipulags og mæliblaða fyrir lóðirnar. 

  • Deiliskipulag og fylgigögn fyrir Suðurhóla 27.
  • Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef Reykjavíkurborgar http://utbod.reykjavik.is. eigi síðar en kl. 12.00, föstudaginn, 16. október 2026. 
  • Áhugasamir bjóðendur eru hvattir til að virkja tímanlega aðgengi sitt að vef. Einungis lögaðilar geta boðið í byggingarréttinn.
  • Suðurhólar 27 á útboðsvef.

Fyrirspurnum verður svarað á útboðsvef. Niðurstaða útboðs verður birt á útboðsvef Reykjavíkurborgar og á slóðinni  https://reykjavik.is/athafnalif