Breytingar á opnunartíma frístundaheimila og félagsmiðstöðva
Borgarráð samþykkti í dag breytingar á reglum um þjónustu frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva. Tillögurnar sem lágu til grundvallar fela aðallega í sér styttingu á opnunartíma yfir vetrartímann og á svokölluðum „löngum dögum“. Breytingarnar taka gildi 22. ágúst 2026. Þá samþykkti borgarráð að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva til klukkan 22:00 á mánudögum og miðvikudögum.
Lengri opnunartími félagsmiðstöðva
Upphafleg tillaga um lengri opnunartíma félagsmiðstöðva kom frá Jökli Loga Sigurjónssyni, fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Bústaða og Háaleitis. Hann lagði til að kvöldopnun félagsmiðstöðva yrði til kl 22:00 á mánudögum og miðvikudögum, að opið yrði til klukkan 22:30 á föstudagskvöldum og að einni kvöldopnun yrði bætt við í viku. Þessar breytingar lagði hann til að tækju gildi haustið 2027.
Skóla- og frístundaráð tók tillöguna til meðferðar og samþykkti meginhluta hennar með breytingartillögu sem felur í sér að opnunartími félagsmiðstöðva verði lengdur til klukkan 22:00 á mánudögum og miðvikudögum og að breytingarnar taki gildi í ár, haustið 2026. Tillagan hefur nú verið samþykkt af borgarráði.
Frístundaheimili – breytingar á opnunartíma
Helsta breytingin er að daglegur lokunartími frístundaheimila færist úr kl. 17:00 í kl. 16:30 yfir vetrartímann. Þá verður þjónusta á frídögum, í jólafríi, páskafríi og á starfs- og foreldradögum í boði frá kl. 08:00–16:30 í stað 08:00–17:00. Önnur fyrirkomulag þjónustunnar helst óbreytt, þar á meðal að foreldrar skrái börn sérstaklega á þessa daga og að skráning sé bindandi.
Sértækar félagsmiðstöðvar – stytting opnunartíma
Svipaðar breytingar eru lagðar til fyrir sértækar félagsmiðstöðvar sem sinna fötluðum börnum og unglingum. Þær munu áfram bjóða þjónustu eftir að skóladegi lýkur, en loka kl. 16:30 í stað 17:00. Þjónusta á frídögum og í skólafríum verður einnig stytt og stendur þá til boða frá kl. 08:00–16:30. Reglur um skráningu, greiðslur og síðdegishressingu eru óbreyttar.
Ástæða breytinganna
Í greinargerð kemur fram að breytingarnar eru lagðar til í kjölfar breytinga á fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs frá árinu 2025, sem gera ráð fyrir endurskoðuðum opnunartíma. Innleiðingu breytinganna var áður frestað og hefur þjónustan því verið ófjármögnuð að hluta, sérstaklega hjá almennum frístundaheimilum. Með breytingunum verður regluverk nú fært í samræmi við fjármögnun og áætlanir sviðsins.