Borgarráð - Fundur nr. 5821

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 16. apríl, var haldinn 5821. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:05. Viðstödd voru Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Kjartan Magnússon, Líf Magneudóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Hildur Björnsdóttir tók sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Ívar Vincent Smárason og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035, sem hér er lögð fram í endanlegri útgáfu ásamt ásamt staðlaðri útgáfu hennar sbr. stafræn skil til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sbr. 1. og 3.gr. reglugerðar 1248/2018 m.s.br. og lög nr. 44/1998 m.s.br. Skil áætlunarinnar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafa farið fram og voru þau gerð á grundvelli samþykktar borgarráðs þann 19. mars sl. á drögum áætlunarinnar, sbr. einnig samþykkt í borgarstjórn 14. apríl 2026. Með áætluninni er sett fram á einum stað greining á stöðu húsnæðismála og yfirlit aðgerða Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum. Þær eiga það sammerkt að mæta áskorunum á húsnæðismarkaði og stuðla að því að ná markmiðum borgarinnar í húsnæðismálum.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar. MSS26030068

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi húsnæðisáætlun meirihluta vinstriflokkanna í Reykjavík. Áætlunin gerir ráð fyrir að allt að 35% húsnæðis í Reykjavík verði niðurgreitt af hinu opinbera. Slík stefna felur í sér verulega kerfisbreytingu á húsnæðismarkaði í átt að umfangsmiklu opinberu húsnæðiskerfi sem á sér hvorki stoð í þörfum né óskum borgarbúa. Með þessu er verið að færa sífellt stærri hluta markaðarins yfir á herðar skattgreiðenda án þess að sýnt sé fram á að það skili auknu framboði eða lægra verði til lengri tíma. Áætlunin leggur megináherslu á niðurgreidd úrræði en skortir skýrar og trúverðugar aðgerðir til að auka framboð húsnæðis. Án stóraukinnar lóðaúthlutunar, einfaldari skipulagsferla og aukins byggingarhraða munu markmið hennar ekki nást. Húsnæðisáætlun vinstriflokkanna er því frekar viljayfirlýsing en raunhæf framkvæmdaáætlun. Kannanir sýna að yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem eru á leigumarkaði vill eignast eigið húsnæði. Áætlunin bregst þeirri eftirspurn og festir fólk frekar á leigumarkaði en að skapa raunhæfar leiðir til eignamyndunar. Séreignastefnan er kjarninn í húsnæðisstefnu Sjálfstæðisflokksins. Hún er forsenda öryggis, stöðugleika og fjárhagslegs sjálfstæðis heimila og lykill að heilbrigðum húsnæðismarkaði í Reykjavík.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fólk býr ekki í áætlunum borgaryfirvalda og í fallegum glærukynningum. Fyrirliggjandi húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar 2026-2035 ber þess merki að vera framlag Samfylkingarinnar og fylgihnatta hennar í meirihluta borgarstjórn í kosningabaráttu. Áætlunin er óraunsæ, þétting byggðar í Úlfarsárdal ólíkleg til að ná fram að ganga og svo mætti lengi telja. Samgöngumál tengd þéttingu byggðar eru óleyst. Af þessum ástæðum styðja óháðir áheyrnarfulltrúar í borgarráði, Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, ekki húsnæðisáætlunina, hún er ekki trúverðugt plagg í aðdraganda borgarstjórnarkosninga.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 17. mars 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 19. mars 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að Þorsteinn Gunnarsson borgarritari verði tilnefndur sem fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. á aðalfundi félagsins sem hefur verið boðað til og haldinn í ráðstefnusal Grósku, Kristínargötu 1, föstudaginn 27. mars 2026 kl. 13:30.

    Greinargerð fylgdi tillögunni. MSS26030067

    Fylgigögn

  3. Lagt fram að nýju bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 10. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki tillögu tilnefninganefndar um að Bjarni Guðjónsson verði aðalmaður í stjórn Félagsbústaða í stað Kjartans Magnússonar, annað verði óbreytt, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 12. mars 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum. MSS26030052

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 17. mars 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 19. mars 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:

    Boðað hefur verið til aðalfundar í Félagsbústöðum hf. þriðjudaginn 31. mars 2026 í samræmi við 14. gr. samþykkta félagsins. Samkvæmt 13. gr. er æðsta vald í málefnum félagsins í höndum lögmætra hluthafa. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundar Félagsbústaða hf. þann 31. mars 2026 er eftirfarandi í samræmi við 17. gr. samþykkta félagsins: Dagskrárliður 1: Skýrsla stjórnar Dagskrárliður 2: Ársreikningur félagsins lagður fram til samþykktar Dagskrárliður 3: Stjórnarkjör Dagskrárliður 4: Ákvörðun um meðferð og niðurstöðu rekstrarreiknings Stjórn leggur til að öllum hagnaði af rekstri félagsins á árinu 2025 verði varið til hækkunar á eigin fé félagsins til samræmis við skýringu í ársreikningi félagsins um ráðstöfun hagnaðar og aðrar breytingar á eiginfjárreikningum. Stjórnin leggur jafnframt til með vísan til 7. gr. samþykkta Félagsbústaða hf. að enginn arður verði greiddur til eiganda félagsins Dagskrárliður 5: Greiðslur til stjórnarmanna. Stjórn leggur til að stjórnarlaun samsvari áfram flokki 2 í launakerfi fastra nefnda hjá Reykjavíkurborg Dagskrárliður 6: Umræður og atkvæðagreiðslur um málefni sem löglega eru upp borin. a. Tillaga um hækkun á hlutafé. Lagt er til að hlutafé Félagsbústaða hf. verði hækkað til samræmis við samþykkt borgarstjórnar, dags. 20. janúar 2026 um 813.000 þ.kr., það er 300.000 þ.kr. vegna ársins 2025 og 513.000 þ.kr. vegna ársins 2026. Engar hömlur eru á viðskiptum með hina nýju hluti og skulu þeir vera í sama flokki og með sömu réttindum og aðrir hlutir í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunar. Reykjavíkurborg hefur þegar skráð sig fyrir öllum hlutum. b. Tillaga um breytingu á samþykktum fyrir Félagsbústaði hf. Lagt er til að samþykktum Félagsbústaða hf. verði breytt til samræmis við framangreinda hækkun á hlutafé. Lagt er til að tillögur stjórnar undir dagskrárliðum nr. 4, 5, 6 a. og 6 b. verði samþykktar. Tilnefninganefnd borgarráðs leggur til að stjórnarkjöri verði frestað til framhaldsaðalfundar sem verður boðað til eigi síðar 15. sept. nk. sbr. útskrift fundargerðar dags. 6. mars 2026. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Félagsbústaða hf. sem haldinn verður 31. mars 2026.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030027

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sitja hjá við afgreiðslu málsins enda leggjast fulltrúarnir sem fyrr gegn tillögu um hækkun á hlutafé sem lögð er fyrir aðalfund. Leggja fulltrúarnir áherslu á að fjárhagsleg sjálfbærni Félagsbústaða verði tryggð til langframa, án þess að framlög borgarinnar hækki. 

    Fylgigögn

  5. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. mars 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 26. mars 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:

    Boðað hefur verið til ársfundar SORPU bs. miðvikudaginn 15. apríl 2026 kl. 16.00 á skrifstofu SORPU á 5. hæð að Köllunarklettsvegi 1. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi SORPU bs: Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar. Tillaga um endurskoðanda. Stjórn leggur til að Grant Thornton endurskoðun ehf. verði kosin endurskoðandi SORPU bs. Lagt er til að framangreindar tillögur verði samþykktar. Ekki kemur til kosningar í stjórn SORPU bs. en í 4. gr. stofnsamnings félagsins segir: „Stjórn byggðasamlagsins er skipuð einum fulltrúa og einum til vara frá hverju aðildarsveitarfélagi og skal hann vera aðalmaður í sveitarstjórn eða framkvæmdastjóri sveitarfélags. Sömu skilyrði gilda um varamenn sem hver sveitarstjórn tilnefnir. Kjörtímabil stjórnar er til tveggja ára frá upphafi kjörtímabils sveitarstjórna. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum og skal formennska skiptast á milli aðildarfélaganna.“ Málið er trúnaðarmál fram yfir ársfund SORPU bs. sem haldinn verður 15. apríl 2026. MSS26030097

    Fylgigögn

  6. Lögð fram að nýju svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. mars 2026, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 26. mars 2026 og færð í trúnaðarbók, ásamt fylgiskjölum:

    Boðað hefur verið til ársfundar Strætó bs. fimmtudaginn 26. mars 2026 kl. 15:00 í safnaðarheimilinu Borgum, Kópavogi. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Eftirfarandi tillögur verða lagðar fram til afgreiðslu á aðalfundi Strætó bs: Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar. Lagt er til að framangreind tillaga verði samþykkt. Ekki kemur til kosningar í stjórn Strætó en í stofnsamningi félagsins segir: „Stjórn byggðasamlagsins er skipuð sjö mönnum, einum frá hverju sveitarfélagi og jafnmörgum til vara. Kjörtímabil stjórnar er hið sama og kjörtímabil sveitastjórnar.” Málið er trúnaðarmál fram yfir ársfund Strætó sem haldinn verður 26. mars 2026. MSS26030066

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki skipan 24 hverfiskjörstjórna, ásamt fylgiskjölum. Jafnframt er óskað eftir að borgarstjóra verði falið að skipa í hverfiskjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast.
    Samþykkt. MSS25050113

    Fylgigögn

  8. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 14. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki skipan undirkjörstjórna í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum. Auk þess er óskað eftir að borgarráð samþykki að fela borgarstjóra að skipa í undirkjörstjórnir í stað þeirra sem kunna að forfallast.
    Samþykkt. MSS25050113

    Fylgigögn

  9. Lögð fram umsögn Reykjavíkurborgar, dags. 7. apríl 2026, um frumvarp til sveitastjórnarlaga. MSS26030025

    Fylgigögn

  10. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. apríl 2026, sbr. samþykkt forsætisnefndar frá 27. mars 2026 á verklagsreglum um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar, og beiðnir borgarfulltrúa um aðgang að gögnum, ásamt fylgiskjölum. MSS23090170

    Fylgigögn

  11. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 9:13 taka borgarstjóri og Róbert Marshall sæti á fundinum.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030103

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun er ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn gagnrýnir útfærslu borgarlínu á Suðurlandsbraut enda er gengið mjög nærri hagsmunum fyrirtækja og borgarbúa á svæðinu. Vel hefði verið hægt að útfæra forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur og gera hjólastíg án þess að fækka bílastæðum og draga úr aðgengi. Að taka bílastæði úr uppdráttum dregur úr gegnsæi og gerir almenningi og hagaðilum erfiðara fyrir að meta áhrif breytinganna.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fyrirliggjandi tillaga kveður á um aðlögun að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínu. Suðurlandsbraut er ein helsta umferðaræð borgarinnar en um hana fara um 25 þúsund bifreiðar á dag. Gatan er mikilvæg tengibraut milli austurs og vesturs og þjónar fjölmennum íbúahverfum og atvinnuhverfum. Tillagan er hluti af þeirri vegferð vinstrimeirihlutans að þrengja að umferð í Reykjavík og auka umferðartafir í borginni. Vinstrimeirihlutinn ætlar sér að taka tvær akreinar af almennri umferð á drjúgum kafla Suðurlandsbrautar og gera þær að sérakreinum fyrir borgarlínu. Jafnframt er ætlunin að fækka stórlega bílastæðum við brautina en þau eru nú þegar af skornum skammti. Undirritaður leggst eindregið gegn slíkum fyrirætlunum. Bent er á að unnt er að koma fyrir sérakreinum fyrir strætisvagna við brautina í stað þess að þrengja að bílastæðum og almennri umferð. Auk þess munu auknar umferðartafir á Suðurlandsbraut leiða til þess að umferð þaðan leiti í meiri mæli inn í nærliggjandi íbúahverfi. Við Suðurlandsbraut eru mörg atvinnufyrirtæki og vinsælir veitingastaðir. Þrenging brautarinnar og mikil fækkun bílastæða myndi torvelda aðgang að fyrirtækjunum og hafa neikvæð áhrif á rekstur þeirra. Mörg fyrirtæki við brautina hafa látið áhyggjur sínar í ljós vegna fyrirhugaðrar fækkunar akreina og bílastæða á svæðinu.

    Fylgigögn

  12. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 18-28 og Ármúla 15-27, ásamt fylgiskjölum.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030100

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun er ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vísar til bókunar við lið 11.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Undirritaður vísar til bókunar sinnar við 11. lið fundarins.

    Fylgigögn

  13. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 30-34 og Ármúla 29-31 (Orkureitur), ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030099

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun er ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vísar til bókunar við lið 11.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Undirritaður vísar til bókunar sinnar við 11. lið fundarins.

    Fylgigögn

  14. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26030101

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vísar til bókunar við lið 11.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Undirritaður vísar til bókunar sinnar við 11. lið fundarins.

    Fylgigögn

  15. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti að lóð B á athafnasvæði á Hólmsheiði, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040061

    Fylgigögn

  16. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 27. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki kaupsamning um sölu á stakri húseiningu við Hæðargarð 27A, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010412

    Fylgigögn

  17. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á breytingatillögu á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.

    Lögð fram svohljóðandi breytingatillaga borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:

    Lagt er til að borgarráð samþykki eftirfarandi breytingar á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík og feli umhverfis- og skipulagssviði að útfæra þær nánar. Drög að uppfærðum reglum verði lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráð til afgreiðslu áður en þær eru lagðar fyrir borgarráð til endanlegrar meðferðar. 1. Hámarksfjöldi bílastæða verði afnuminn. Ekki verði lengur sett efri mörk á fjölda bílastæða við uppbyggingu. 2. Lágmarksviðmið verði einföld og skýr: Miða skal við að almennt sé gert ráð fyrir að lágmarki einu bílastæði á hverja íbúð. Fyrir íbúðir með þrjú herbergi eða fleiri skal almennt miða við að lágmarki 1,5 bílastæði á íbúð. 3. Svæðaskipting verði felld niður. Ekki verði lengur gerður greinarmunur á svæði I og II við ákvörðun bílastæðafjölda. 4. Sveigjanleiki verði aukinn: Byggingaraðilum verði heimilt, á eigin ábyrgð og með rökstuðningi, að víkja frá framangreindum viðmiðum um fjölda bílastæða ef þeir telja forsendur til.

    Breytingatillagan er felld með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. 
    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Lögð fram svohljóðandi breytingatillaga borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins:

    Lagt er til að gjaldskylda á gjaldsvæðum P1 og P2 falli niður eftir kl. 18 virka daga. Að gjaldskylda á laugardögum verði stytt og falli niður eftir kl. 16. Að gjaldskylda á sunnudögum verði felld niður. Að farið verði í endurskoðun á gjaldtöku á íbúasvæðum með það að markmiði að bæta íbúakort og einfalda kerfið. Að verð á íbúakorti fyrir bíl númer 2 verði lækkað um helming. Að innleitt verði sérstakt bílastæðakort fyrir atvinnurekendur í miðborg, bæði þá sem stunda rekstur í miðborginni og skammtíma bílastæðakort fyrir þá sem sinna tímabundnum verkum fyrir íbúa í miðborginni, svo sem iðnaðarmenn. Að ráðist verði í markvissa kynningu á bílastæðahúsum borgarinnar og aðgengi að þeim. Að gjald á gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar með það að markmiði að lækka gjaldtöku. Að áður en breytingar á gjaldskrá og gjaldskyldu taka gildi verði haft virkt samráð við samtök rekstraraðila og íbúasamtök í miðborginni og Vesturbæ, enda var slíkt samráð ekki tryggt við síðustu breytingar.

    Breytingatillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn atkvæði borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins. 
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Upphafleg tillaga um reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík er samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. USK26010446

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að breytingatillaga Sjálfstæðisflokksins um einföldun og skýrari viðmið í reglum um fjölda bílastæða hafi verið felld. Tillagan miðaði að því að auka gagnsæi, draga úr flækjustigi og færa ákvarðanatöku nær raunverulegum þörfum íbúa og uppbyggingar. Núgildandi kerfi byggir á flóknum viðmiðum, svæðaskiptingu og takmörkunum sem hafa í framkvæmd aukið óvissu, tafir og kostnað við uppbyggingu. Með því að hafna tillögunni er áfram haldið í fyrirkomulag sem hefur ekki reynst nægilega skilvirkt. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að reglur um bílastæði taki mið af raunverulegum þörfum, ekki síst fjölskyldna í stærri íbúðum, og að ákvarðanir um slíka grunnþætti í skipulagi séu settar fram með skýrum og gagnsæjum hætti. Mikilvægt er að einfalda regluverk og bæta fyrirsjáanleika í þágu íbúa og uppbyggingar.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn telur eðlilegt að almenna reglan sé að eitt bílastæði fylgi hverri íbúð. Þessi tilraun meirihlutans til að ganga í augun á kjósendum sem eru orðnir fullsaddir af stefnu meirihlutans er ekkert annað en vandræðaleg.

    Áheyrnarfulltrúinn Kjartan Magnússon leggur fram svohljóðandi bókun:

    Frá árinu 2019 hafa afar þröngar og flóknar reglur gilt um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, sem verið hafa til óþurftar og leitt af sér vandræði fyrir marga borgarbúa. Mörg dæmi eru um að bílastæði séu of fá við nýbyggingar, sem valdið hefur íbúum þeirra miklum vandræðum, t.d. í Gufunesi. Þá eru einnig mörg dæmi um að þétting byggðar leiði til aukins skorts á bílastæðum í grónum hverfum vegna óbreytts fjölda og jafnvel fækkunar bílastæða eins og t.d. í Brautarholti, íbúum til ama og óþæginda. Margir byggjendur kvarta yfir því að borgaryfirvöld þvingi þá til að hafa miklu færri bílastæði við nýbyggingar en þörf er fyrir. Brýnt er að einfalda og rýmka þessar reglur til muna. Tillaga vinstrimeirihlutans um breytingar á þeim gengur hins vegar mjög skammt og mun engan veginn vinda ofan af því ófremdarástandi, sem nú ríkir að þessu leyti. Afnema þarf reglu um hámarksfjölda bílastæða og svæðaskiptingu en leitast við að tryggja að fjöldi bílastæða sé í samræmi við þarfir íbúa í viðkomandi húsum og hverfum. Eðlilegt væri að kveðið væri á um eitt bílastæði á hverja íbúð að lágmarki og tvö stæði að lágmarki fyrir íbúðir með fjögur herbergi eða fleiri.

    Fylgigögn

  18. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 13. apríl 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki drög að viðauka við húsaleigusamning um stækkun á Fylkisseli um 567 fermetra, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. USK26040127

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Með þessum samningi er tryggt að fimleikahús Fylkis í Norðlingaholti verði stækkað. Það er mikið fagnaðarefni þar sem um er að ræða það verkefni sem var í efsta sæti á forgangslista yfir uppbyggingu íþróttamannvirkja enda mætir það þörfum sérstaklega stúlkna fyrir aukið framboð íþrótta.

    Fylgigögn

  19. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 18. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna undirbúnings og hugmyndaleitar fyrir hús dans- og varnaríþrótta í Breiðholti, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 50 m.kr.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti undir þessum lið ásamt Grétu Þórsdóttur, Margréti Lilju Gunnarsdóttur og Steinþóri Einarssyni sem taka sæti með rafrænum hætti. USK26020174

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Nýtt hús fyrir dans og varnaríþróttir í efra Breiðholti mun skipta sköpum varðandi framboð á íþróttum fyrir börn og ungmenni í því hverfi þar sem þátttaka í íþróttum og nýting frístundastyrksins hefur verið hvað minnst. Um er að ræða verkefni í breyttu formi sem lenti mjög ofarlega í vinnu við forgangsröðun íþróttamannvirkja og er mikið ánægjuefni að málið sé nú komið á góðan rekspöl þar sem farið verður í hugmyndaleit um hönnun og útfærslu mannvirkisins sem síðan fer í fullnaðarhönnun og byggingu.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn styður uppbyggingu þessa íþróttamannvirkis í Breiðholti enda mikilvægt að efla íþróttaaðstöðu í hverfinu. Gæta þarf að því að eiga gott samráð við hagaðila svo sem danssamfélagið og varnaríþróttafélög. Þá er einnig afar brýnt að uppbygging mannvirkisins sé unnin í góðu samráði við íbúa á svæðinu.

    Fylgigögn

  20. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssvið, dags. 15. apríl, sbr. kynningu í umhverfis- og skipulagsráði frá 15. apríl 2026, á stefnu og áætlun um gönguvæna Reykjavík, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn.

    Ólöf Örvarsdóttir og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Rebekku Guðmundsdóttur sem tekur sæti með rafrænum hætti. MSS24110133

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrsta stefna Reykjavíkur um gönguvæna borg lítur hér dagsins ljós sem fer í kjölfarið í samráð. Sérstök áhersla er á öryggi, aðgengi og vellíðan barna í hverfum borgarinnar. Lagt er upp með stórfellt átak í úrbótum á innviðum fyrir gangandi, bætta vetrarþjónustu fyrir gangandi með sérstökum snjósöfnunarsvæðum sem skerða ekki aðgengi gangandi, betri tengingar fyrir gangandi við almenningssamgöngur og að setja óskastíga inn í gangstéttarnetið, aðgerðir til að lækka raunhraða, bæta lýsingu og skapa ánægjulegt umhverfi sem hvetur til göngu. Stýrihópurinn var þess heiðurs aðnjótandi að fá aðstoð Walk21 og Jim Walker sem er helsti sérfræðingur í göngumálum í heiminum.

    Fylgigögn

  21. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um að hefja samtal við Samhjálp um staðsetningu kaffistofu, sbr. 26. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. febrúar 2026. Einnig lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 30. mars 2026.

    Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar velferðarsviðs með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26020025

    Fylgigögn

  22. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, að viðauka við fjárhagsáætlun 2026. Greinargerðir fylgja tillögunum.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010020

    Fylgigögn

  23. Lögð fram að nýju tillaga borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um að styrkumsókn Samhjálpar verði tekin fyrir á næsta fundi borgarráðs, sbr. 25. lið fundargerðar borgarráðs frá 5. febrúar 2026. Einnig lögð fram umsögn velferðarsviðs, dags. 30. mars 2026.

    Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar velferðarsviðs með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. MSS26020026

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ekki hefur verið sótt um til borgarráðs og ekki væri hægt að taka það fyrir hér án þeirra óskar, utan umsóknartíma, enda hafa umsóknir í þann pott einnig verið afgreiddar.

    Fylgigögn

  24. Lagt fram bréf mannréttindaskrifstofu, dags. 1. apríl 2026, sbr. samþykkt mannréttindaráðs frá 31. mars 2026 á aðgerðaáætlun aðgengisstefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Anna Kristinsdóttir, Bragi Bergsson og Valgerður Jónsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. MSS22010199

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn hrósar metnaðarfullri stefnu um aðgengismál en staða aðgengisfulltrúa var sett á laggirnar í síðasta meirihluta og aukin áhersla lögð á aðgengismál. Framsókn gagnrýnir þó að tillögunni fylgi ekki kostnaðargreining og ekki er skýrt gerð grein fyrir því hvernig eigi að fjármagna þær verklegu framkvæmdir sem nefndar eru svo sem endurgerð allra sérklefa í sundlaugum, fjölgun bílastæða fyrir hreyfihamlaða og sjónrænt og hljóðrænt tilkynningarkerfi í þjónustuveri og miðstöðvum.

    Fylgigögn

  25. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 14. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu um endurreisn úrbótasjóðs tónleikastaða sbr. samþykkt menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl sl. Þar er lagt til að úrbótasjóður tónleikstaða verði endurvakin í samræmi við tillögu spretthóps um eflingu tónleikastaða. Til sjóðsins verði varið 10 m.kr. til úthlutunar á árinu 2026 og sviðsstjóra menningar- og íþróttasviðs verði falið að vinna úthlutunarreglur. Tillagan er fjármögnuð úr ramma menningar- og íþróttasviðs. Jafnframt er lagt til að öðrum tillögum spretthópsins verði vísað til skrifstofu borgarstjórnar til umsagnar.

    Samþykkt.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR25110015

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Ein af burðartillögum spretthóps menningar- og íþróttaráðs um eflingu tónleikastaða í borginni var að endurreisa úrbótasjóð tónleikastaða sem settur var á fót 2020 sem tilraunaverkefni til þriggja ára. Með þessari tillögu er tryggt fjármagn, 10 m.kr. til að setja úrbótasjóðinn á laggirnar á ný strax á þessu ári svo hefjast megi handa við að renna stoðum undir öflugra tónleikahald í borginni. Öðrum tillögum spretthópsins m.a. um einföldun leyfisveitinga tónleikastaða er vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjórnar.

    Fylgigögn

  26. Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 10. apríl 2026, sbr. samþykkt menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl 2026 á tillögu um lengri opnunartíma sundlauga sumarið 2026, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR24020058

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Sundlaugar borgarinnar bjóða upp á hvað lengstan opnunartíma á landinu enda metnaðarmál að höfuðborgin sé í fararbroddi varðandi þjónustu sem er í senn heilsubót fyrir íbúana og mikilvægur hluti af lifandi borgarsamfélagi. Með þessari tillögu er lagt til að opnunartíminn verði lengdur á komandi sumri svo sundlaugar borgarinnar verði opnar lengur á kvöldin um helgar eða til kl. 22.

    Fylgigögn

  27. Lagt fram bréf menningar- og íþróttasviðs, dags. 13. apríl 2026, sbr. samþykkt menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl 2026 á tillögu um sumarstörf fatlaðra framhaldsskólanema, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR26040001

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Hitt húsið heldur úti metnaðarfullu og mikilvægu frístundastarfi fyrir fatlaða framhaldsskólanema sem er í senn lögbundið verkefni og hluti af öflugu mennta- og velferðarsamfélagi borgarinnar. Veigamikill hluti af þessu starfi felst í því að útvega umræddum ungmennum störf yfir sumartímann. Með tillögunni er menningar- og íþróttaráð að tryggja 75 ungmennum störf á komandi sumri við fjölbreytt verkefni sem er fjölgun um 20 ungmenni frá fyrra ári.

    Fylgigögn

  28. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 14. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu um hagræðingaraðgerðir menningar- og íþróttasviðs sbr. samþykkt menningar- og íþróttaráðs frá 10. apríl sl. Þar er lagt til að ráðist verði í viðbótarhagræðingu á fjórum kostnaðarliðum í fjárhagsáætlun menningar- og íþróttasviðs sem nemur 35,9 m.kr. til að fjármagna tillögur samstarfsflokkanna um sumarstörf fatlaðra framhaldsskólanema, endurreisn úrbótasjóðs tónleikastaða, og lengri opnunartíma sundlauga í sumar.

    Samþykkt.

    -    Kl. 10:47 víkur Róbert Marshall af fundinum.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MIR25080006

    Fylgigögn

  29. Lagt fram að nýju bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 23. mars 2026, sbr. 8. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026 á tillögu um breytingu á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Steinn Jóhannsson og Soffía Pálsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. SFS25020020

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Stytting opnunartíma frístundaheimila felur í sér skerðingu á þjónustu við börn og fjölskyldur í borginni. Slíkar breytingar eru sérstaklega varhugaverðar í ljósi stöðu þjónustunnar og þeirra áskorana sem þegar eru til staðar. Þá er gagnrýnt að greinargerð málsins sé ófullnægjandi þar sem hvorki er gerð grein fyrir nýtingu tímans, hvaða valkostir voru skoðaðir né hvað aðgerðin sparar. Þá liggur fyrir að fjármagn vegna opnunartíma var þegar tekið úr rekstrarramma án þess að þjónustan hafi verið skert á sama tíma. Mikilvægt er að leita leiða til að halda úti þjónustu til kl. 17 og tryggja samráð við foreldra og starfsfólk um áhrif breytinganna. Í stað skerðinga hefði átt að tryggja eðlilega fjármögnun. Ný borgarstjórn þarf, að loknum kosningum, að taka málið upp að nýju.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn gagnrýnir að opnunartími frístundaheimila sé skertur. Þessi ákvörðun kemur strax í kjölfarið á breyttri gjaldskrá leikskóla sem setur mikinn þrýsting á foreldra að sækja börn sín fyrr ellegar greiða hærra verð. Frístundaheimili eru mikilvæg þjónusta við barnafjölskyldur en þar fer fram skipulagt fjölbreytt og faglegt frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6-9 ára að loknum skóladegi barna. Stytting opnunartíma frístundaheimila eykur þannig álagið á fjölskyldur og gerir þeim erfitt fyrir að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Það leggst enn þyngra á einstæða foreldra. Þessi ákvörðun mun líka auka á mönnunarvanda frístundaheimila sem hefur verið talsverður. Flest störf í frístundaheimilum eru hlutastörf eftir hádegi, sem er oft sinnt af námsfólki. Styttri vaktir auka vandann því þær gera störfin síður eftirsóknarverð. Það munar nefnilega um 2,5 klukkustundum í tekjum af vinnu á viku hverri. Réttara hefði verið að ráðast í markvissar aðgerðir til að tryggja stöðugri mönnun, meðal annars með auknu samstarfi við háskóla sem kenna fög sem tengjast starfinu og skapa heils dags og heils árs störf í frístundaheimilum.

    Fylgigögn

  30. Lagt fram að nýju bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 24. mars 2026, sbr. 9. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026 á tillögu um að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Steinn Jóhannsson og Soffía Pálsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26020040

    Fylgigögn

  31. Lagt fram bréf velferðarsviðs, dags. 13. apríl 2026, sbr. samþykkt velferðarráðs frá 25. mars, á tillögu um breytingu á gjaldskrá veitinga og fæðis, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn þremur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Halla Hallgrímsdóttir, Rannveig Einarsdóttir og Þórhildur Guðrún Egilsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. VEL26030121

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Í ljósi þess að ekki er hægt að nota framleiðslueldhúsið á Vitatorgi á meðan á framkvæmdum stendur við úrbætur þarf að kaupa mat af þriðja aðila til þess að bjóða upp á samfellu í þjónustu. Það er auðséð að það kostar meira að bjóða matinn út en að elda matinn sjálf, af því leiðir þessi hækkun sem fjármagnar aukinn kostnað eingöngu að hluta til.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Í ljósi hárrar verðbólgu og verðbólgumarkmiðs upp á 2,5% getur Framsókn ekki stutt við gjaldskrárhækkanir sem nema allt að 20%. Slíkar hækkanir eru langt umfram verðbólgumarkmið. Um er að ræða enn eina gjaldskrárhækkunina af hálfu vinstri flokkanna á borgarbúa, en Veitur hafa til að mynda verið að hækka gjaldskrár sínar langt umfram almennar verðlagsbreytingar. Allt þetta leggst ofan á hækkanir ríkisstjórnarinnar. Betur hefði farið á því að hagræða í rekstri borgarinnar til að mæta auknum kostnaði vegna breytinga á matarþjónustu borgarinnar.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Þessi tillaga er samþykkt í ljósi þess að kostnaður vegna máltíðaþjónustu hefur hækkað og ljóst er að hann mun hækka verulega vegna framkvæmda sem fram undan eru þar sem ekki verður hægt að framreiða mat í Vitatorgi. Máltíðir hækka annarsvegar um 90 krónur og 95 krónur og verð fyrir akstur hækkar um 55 krónur. Almennt verð fyrir aðra en þá sem eru með greiðslur lífeyris fer úr 1.755 kr. í 1.915 kr. en fáir hafa verið að kaupa þær máltíðir. Þegar framkvæmdum er lokið á Vitatorgi og framleiðslueldhúsið hefur opnað að nýju er mögulega hægt að endurskoða verð aftur í samræmi við framleiðslukostnað.

    Fylgigögn

  32. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3259/2025. MSS25050125

  33. Lagður fram dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. E-3257/2025. MSS25050126

  34. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 13. apríl 2026, um málaferli Reykjavíkurborgar. MSS26010143

  35. Lagt fram bréf þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 15. apríl 2026, sbr. samþykkt þjónustu- og nýsköpunarsviðs frá 15. apríl 2026 á stafrænni stefnu Reykjavíkurborgar 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
    Vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn.

    Kristinn Jón Ólafsson, Eva Pandora Baldursdóttir og Sólveig Skaftadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. ÞON24090056

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að enn vanti inní stefnuna skýrari mælikvarða, ábyrgð og framkvæmdaáætlun svo hún verði raunhæft stjórntæki en ekki aðeins almenn framtíðarsýn. Núverandi markmið, á borð við „framsækna þjónustu“ og „gagnadrifna ákvarðanatöku“, eru of óskýr til að hægt sé að meta árangur. Mikilvægt er að skilgreina mælanleg markmið og lykilmælikvarða við hvert verkefni. Einnig er engar upplýsingar að finna um fjármögnun, kostnaðarmat eða forgangsröðun verkefna. Án þess er hætta á að stefnan verði ekki innleidd með markvissum hætti. Einnig vantar aðgerðaáætlun með stefnunni með ábyrgðaraðilum, tímaáætlun og fjármagni. Mikilvægt er að ábyrgð á stafrænni umbreytingu verði dreifð á öll svið borgarinnar en ekki bundin eingöngu við þjónustu- og nýsköpunarsvið, skýra þarf ábyrgð með að fjárhagslegur ábati af verkefnum skili sér inná sviðin og að það sé unnið í samhengi og á sama tíma og fjárhagsáætlun. Fulltrúarnir geta ekki greitt atkvæði með stefnunni meðan aðgerðaáætlun liggur ekki fyrir og því óskýrt hvað er verið að leggja til samþykktar.

    Fylgigögn

  36. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 14. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagðar eru fram til meðferðar borgarráðs tillögur stýrihóps um endurskoðun innkaupastefnu og innkaupareglna.

    -    Kl. 12:00 víkur Hildur Björnsdóttir af fundinum og Friðjón R. Friðjónsson tekur sæti með rafrænum hætti.
    -    Kl. 12:05 víkur Kjartan Magnússon af fundinum og Marta Guðjónsdóttir tekur þar sæti.

    Vísað til síðari umræðu í borgarstjórn.

    Andrea Helgadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Höllu Björgu Evans sem tekur sæti með rafrænum hætti. MSS25070013

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:

    Framtíðarsýnin sem kynnt er í uppfærðri innkaupastefnu borgarinnar til 2030 er meðal annars að með skipulögðum hætti geti borgin átt þátt í því að stuðla að bættum aðstæðum á vinnumarkaði, bættu úrvali umhverfisvænnar vöru og þjónustu og ýtt undir nýjar og skapandi lausnir við áskorunum samfélagsins, ásamt því að stuðla að heilbrigðri samkeppni á íslenskum markaði. Samhliða aðgerðum á innleiðingarárinu 2026 er stefnan tekin á að hefja undirbúning á frekari greiningu og áætlanagerð næsta árs til að tryggja að markmiðum stefnunnar verði náð með áþreifanlegum hætti á gildistíma hennar til 2030. Mat á áhrifum verður einnig að taka mið af því að ekki er í öllum tilfellum hægt að notast við núllkosti sem gera ráð fyrir óbreyttum aðferðum, en samfélagslegar afleiðingar aðgerðaleysis verða seint metnar að fullu til fjár, sérstaklega ef reikningurinn er sendur á kynslóðir framtíðar eða ef fé er sótt í einn vasa í borginni og fært yfir í annan. Borgin er aðili að ýmsum alþjóðlegum samningum, meðal annars um kolefnishlutleysi, til viðbótar við eigin innri stefnur. Innkaupastefnunni er ætlað að vera verkfæri til að setja slíkt í praktískan farveg og mun verða unnið út frá þeim markmiðum á gildistíma hennar.

    Fylgigögn

  37. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi afnotasamning við Tómas Kristin Sigurðsson og Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, fyrir hönd óstofnaðs félags, Samtaka hjólabúa, á um 3900m2 landspildu í Gufunesi.

    -    Kl. 12:40 víkur Skúli Helgason af fundinum.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. MSS26030016

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að réttast sé að huga betur að þeim ábendingum sem fram koma í umsögn borgarlögmanns áður en málið er afgreitt.

    Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands ásamt áheyrnarfulltrúum Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi gagnbókun:

    Því ber að halda til haga að brugðist var við athugasemdum borgarlögmanns, farið var í auglýsingu og skýrt er tekið fram í samningnum að ekki er um sérleyfissamning að ræða, eða heimild til að standa í atvinnustarfsemi eða rekstri.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Framsókn vill tryggja húsnæðisöryggi íbúa borgarinnar. Framsókn leggst hinsvegar gegn því að borgin komi upp hjólhýsagarði sem sérstöku húsnæðisúrræði í Reykjavík. Það gengur gegn öllum sjónarmiðum um félagslega blöndun, öryggi barna og eldri borgara. Reykjavík á og rekur Félagsbústaði sem er ætlað að tryggja Reykvíkingum félagslegt húsnæði auk þess sem borgin veitir milljörðum til uppbyggingar óhagnaðardrifins leiguhúsnæðis. Fyrirsjáanlegt er að fjöldi fólks muni vilja fá aðgang að svæðinu. Eðlilegra væri að þau sem vilja kjósa að búa í hjólhýsum óskuðu eftir og greiddu fyrir langtímastæði á þeim tjaldstæðum sem til boða standa á höfuðborgarsvæðinu. Í umsögn borgarlögmanns er gerð alvarleg athugasemd um að gengið sé til samninga við óstofnað félag, og tilgangur félagsins liggi því ekki fyrir. Þá er óljóst hvernig rekstri hjólhýsagarðsins verði háttað. Þessi ákvörðun hefur ekki verið grenndarkynnt og engin umsögn liggur fyrir frá umhverfis- og skipulagssviði.

    Fylgigögn

  38. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að reisa minnismerki um kvennabaráttuna í samstarfi við fulltrúaráð verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík í samræmi við viljayfirlýsingu þess efnis sem undirrituð var 23. október 2025 af borgarstjóra og formanni fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavíkurborgar Reykjavík. Minnismerkið styður við sjálfsmynd Reykjavíkur sem jafnréttisborgar og heiðrar sögu og framlag Rauðsokkahreyfingarinnar og baráttusögu kvenna fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og jöfnuði í samfélaginu. Verkinu hefur verið fundinn staður í Hljómskálagarðinum og er kostnaðaráætlun 11,3 m.kr. Framlag fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar mun nema 5 m.kr. og lagt er til að mótframlag Reykjavíkurborgar verði 6,3 m.kr. auk að hámarki 1 m.kr. kostnaðar við frágang. Framlag Reykjavíkur er fjármagnað af liðnum ófyrirséð.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26030129

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarráðsfulltrúi Viðreisnar tekur heilshugar undir tillögu um að reisa minnismerki um kvennabaráttuna í Reykjavík. Mikilvægt er að borgin heiðri með sýnilegum hætti þá merkilegu sögu sem Rauðsokkahreyfingin og aðrar konur hafa skapað í baráttunni fyrir jafnrétti, félagslegu réttlæti og bættum lífskjörum. Tillagan er stórgóð. Hún styður við þá sjálfsmynd Reykjavíkur sem jafnréttisborgar og er mikilvægt skref í að gera framlag kvenna sýnilegra í almenningsrýminu, þar sem slíkt hefur oft skort. Jafnframt er jákvætt að verkefnið sé unnið í samstarfi við fulltrúaráð verkalýðshreyfingarinnar og byggi á skýrri viljayfirlýsingu. Sú samvinna endurspeglar rætur baráttunnar og eykur trúverðugleika verkefnisins. Borgarráðsfulltrúi styður því tillöguna og væntir þess að vandað verði til verksins við hönnun, staðsetningu og framkvæmd minnismerkisins þannig að það verði verðugur minnisvarði um mikilvægan þátt í sögu samfélagsins.

    Fylgigögn

  39. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 13. apríl 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að styðja útgáfu bókar um fornleifarannsóknir og sögu Viðeyjar og Viðeyjarklausturs, eftir Margréti Hallgrímsdóttur fornleifafræðing, með því að semja við Hið íslenska bókmenntafélag um kaup á eintökum bókarinnar að fjárhæð allt að 4.000.000 kr. Kaupin verði fjármögnuð af liðnum ófyrirséð.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt. MSS26040024

    Fylgigögn

  40. Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók. MSS26030108

  41. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030115

  42. Lögð fram að nýju beiðni borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, dags. 9. mars 2026, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. mars 2026, þar sem borgarfulltrúarnir óska eftir heimild borgarráðs til að fá að tilnefna áheyrnarfulltrúa í ráðinu. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. mars 2026.
    Tillögunni er vísað frá þar sem hún hefur þegar verið afgreidd á vettvangi borgarstjórnar. MSS26030041

    -    Kl. 13:12 víkur Líf Magneudóttir af fundinum.

    Fylgigögn

  43. Lögð fram fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, ódags., um áheyrnarfulltrúa í borgarráði. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjórnar, dags. 30. mars 2026. MSS26030041

    Fylgigögn

  44. Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Framsóknarflokksins um stöðu samkomulags vegna barna með fjölþættan vanda, sbr. 38. lið fundargerðar borgarráðs frá 26. febrúar 2026. Einnig lagt fram svar velferðarsviðs, dags. 13. apríl 2026. MSS26020115

    Fylgigögn

  45. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 30. mars og 9. apríl 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  46. Lögð fram fundargerð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 13. mars 2026. MSS26010015

    Fylgigögn

  47. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 15. desember 2025. MSS25010028

    Fylgigögn

  48. Lögð fram fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 26. janúar 2026. MSS26010018

    Fylgigögn

  49. Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 10. mars og 20. mars 2026. MSS26010019

    Fylgigögn

  50. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 15. apríl 2026.
    13. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  51. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 10 mál (MSS26010011, MSS26010013, MSS26010031, MSS26030121, MSS26030022, MSS26030130, MSS24100050, MSS26040017, MSS26040035 og MSS24040172). MSS26040001

    Fylgigögn

  52. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26040026

    Fylgigögn

  53. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarfulltrúans Kjartans Magnússonar:

    Lagt er til að samið verði við Listasafn Sigurjóns Ólafssonar um að safnið fái afnot af styttu Sigurjóns Ólafssonar af séra Friðriki Friðrikssyni æskulýðsleiðtoga, sem nú er hýst í lokaðri listaverkageymslu Listasafns Reykjavíkur. Um lánsafnot verði að ræða. MSS26040040

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Frestað.

    Fylgigögn

  54. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn Kjartans Magnússonar óháðs borgarfulltrúa:

    Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum um heildarkostnað vegna leikskólans Brákarborgar við Kleppsveg 150-152. Gerð verði grein fyrir kostnaði við kaup á mannvirkjum og endurbyggingu þeirra, húsa jafnt sem lóða. Gerð verði grein fyrir öllum kostnaði við verkefnið, þ.m.t. skýrslur ráðgjafa, hönnun, umsjón, eftirlit, sem og kostnaði við flutning leikskólans og leigu á öðru húsnæði á viðgerðartímanum. Óskað er eftir því að allar upplýsingar um kostnað verði gefnar upp á gildandi verðlagi. MSS26040042

Fundi slitið kl. 13:35

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Friðjón R. Friðjónsson

Heiða Björg Hilmisdóttir Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 16. apríl 2026 - Prentvæn útgáfa