Börnin í Maríuborg slúttuðu janúar með ljósadýrð

Mynd frá ljósadegi í Maríuborg.

Í Maríuborg hefur hver mánuður sinn lit og í janúar var svartur litur í forgrunni. Janúar er einn dimmasti mánuður ársins og því kjörið að nýta myrkrið til að skapa ævintýraheim ljósa, skugga og litadýrðar.

Breyttu leikskólanum í heillandi veröld

Á dögunum var svörtum janúar slúttað með stæl þegar haldinn var sérstakur vasaljósadagur sem breytti leikskólanum í heillandi ljósaveröld. Miðrými skólans umbreyttist í upplifunarrými þar sem börn og kennarar gátu kannað undur ljóssins á eigin forsendum.

Himingeimnum var varpað upp á loftið og börnin gátu fylgst með plánetum og stjörnum svífa yfir höfði sér. Á gólfinu biðu ljósaborð, slæður og litríkir kubbar og í kubbakróknum mátti finna sannkallaða upplifun fyrir skilningarvitin þar sem börnin gátu leikið sér með glimmer, dúska og annan glansandi efnivið sem ýtti undir sköpun, forvitni og leikgleði.

Mynd frá ljósadegi í Maríuborg.

Fylgdust með uppgötvun ljóss og skugga

Kennarar lýsa því að gleðin hafi verið smitandi og að ómetanlegt sé að fylgjast með börnunum uppgötva möguleika ljóss og skugga og skapa nýjar tengingar í gegnum leik og skynjun. Slíkar upplifanir eru hluti af áherslu Maríuborgar sem felst í að börn fái að upplifa, skynja, prófa og leika á sínum eigin forsendum, í öruggu og skapandi umhverfi.

Dagurinn endaði í sannkölluðu ljósaflóði þar sem börn og kennarar skemmtu sér saman og kvöddu janúar með bros á vör. Þau taka öll fagnandi á móti febrúar og hækkandi sól.