Borgin okkar - Menning, viðburðir og afþreying í Reykjavík á einum stað
Borginokkar.is, er nýtt vefsvæði Reykjavíkurborgar þar sem íbúar og gestir geta fundið upplýsingar um menningu, hátíðir, viðburði, sundlaugar og útilíf í borginni.
Borginokkar.is, veitir yfirsýn yfir fjölbreytt menningarlíf borgarinnar. Þar er jafnframt að finna lifandi og myndrænt viðburðadagatal þar sem fólk á öllum aldri getur sótt upplýsingar um og fundið afþreyingu við sitt hæfi.
Vefur sem breytist með árstíðum
Á borginokkar.is er alltaf hægt að finna upplýsingar um söfn og sundlaugar Reykjavíkur, fjölbreytta möguleika til útilífs í borginni, Ylströndina í Nauthólsvík. Ennfremur er yfirlit yfir hátíðir borgarinnar, Menningarnótt, Vetrarhátíð, Barnamenningarhátíð ásamt viðburðum þar sem meðal annars er boðið upp á skemmtilega afþreyingu og hreyfingu. Forsíða vefsins tekur breytingum í útliti og áherslum eftir árstíðum og þar má sjá það sem hæst ber hverju sinni.
Viðburðadagatal Reykjavíkurborgar
Viðburðadagatal Reykjavíkurborgar er opið öllum viðburðahöldurum, rekstraraðilum og listafólki sem vill koma sínum viðburðum á framfæri. Viðburði þarf að skrá í gegnum viðburðadagatal Reykjavíkur.
Reykjavíkurborg hvetur íbúa, gesti og viðburðahaldara til að kynna sér nýja vefinn, finna eitthvað við sitt hæfi og uppgötva allt það skemmtilega sem Reykjavík hefur upp á að bjóða á sviði, menningar, hátíða, viðburða, sundlauga og útivistar.
Kynntu þér framboðið og finndu þína upplifun á borginokkar.is