Borgarhönnunarstefna Reykjavíkur aðgengileg
Meginmarkmið borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur er að skapa mannvæna og sjálfbæra borg sem styrkir samfélag og býður upp á fjölbreytt tækifæri fyrir alla íbúa. Hún var samþykkt í borgarstjórn 2025 og er nú komin út í kiljuformi og er hægt að kaupa eintak í safnbúð Kjarvalsstaða á Flókagötu og í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14.
Borgarhönnunarstefnan er fyrir öll þau sem vinna að skipulagi og hönnun borgarinnar, hvort sem það eru lóðarhafar, uppbyggingaraðilar, hönnuðir eða starfsmenn borgarinnar. Stefnunni leggur grunn að skýrari ákvarðanatöku og innleiðingu sem styður við skipulag, umhverfismál og velferð borgarbúa. Stefnan fræðir borgarbúa líka um þau mikilvægu atriði sem þarf að huga að við hönnun og skipulag farsællar borgar.
Stefnan er fræðilegt rit fyrir öll sem hafa áhuga á borgarhönnun og skipulagi borga og bæja og hvernig við getum hugað að umhverfislegum þáttum út frá manneskjunni og hennar þörfum. Stefnan styður við umhverfislega, samfélagslega, félagslega og efnahagslega sjálfbærni borgarinnar.