BIG BANG kemur með sumarið í Breiðholtið
Á sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl fer fram evrópska tónlistarhátíðin BIG BANG í Borgarbókasafninu Gerðubergi og Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi 2. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og verður boðið upp á frumlega og fjölbreytta tónlistarviðburði frá klukkan 11:00 til klukkan 16:00.
Markmiðið með tónlistarhátíðinni er að setja upplifun barna í forgrunn og leyfa þeim að njóta og upplifa fjölbreyttan heim tónlistarinnar. Sérstök áhersla er lögð á að fá til leiks tónlistarfólk og tónskáld sem sjá ævintýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að gera öllum börnum kleift að sækja tónleika og eiga þar ríkulega og eftirminnilega reynslu.
Allskonar í tilefni sumarkomu
Múrbalasláttur Sigga og Kela trommuleikararnir Sigurður Ingi Einarsson og Hrafnkell Örn Guðjónsson hafa undanfarin misseri ferðast vítt og breitt um landið og kennt börnum að tromma á múrbala (já þú last rétt, svörtu föturnar í Múrbúðinni). Nú er komið að börnum í þremur grunnskólum í Breiðholti að taka þátt og heyrst hefur að börn í Breiðholti séu einstaklega kraftmikil og taktföst. Ekki missa af Múrbalaslætti!
Tónatak er skemmtilegur viðburður þar sem prófað er hvernig rafmagn og snerting breyta venjulegum ávöxtum í hljóðfæri. Er hægt að spila tónlist á það sem er til í ávaxtaskálinni heima, eða bara í ísskápnum? Mynduð verður lítil rafhljómsveit og svo er bara að prufa sig áfram og byggja upp hljóm.
Bernskubrek eru þjóðlagaskotnir barna- og fjölskyldutónleikar fyrir hressa og skapandi krakka á öllum aldri. Hljómsveitin Brek býður upp á nærandi og metnaðarfulla tónlistarupplifun fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem renna saman minningarbrot, frásagnir hljóðmyndir og tónlist í framúrskarandi flutningi.
Spring Quartet (Gorma kvartett) Það hafa líklega öll heyrt dauf hljóð sem myndast inni í gormadýnum. Spring Quartet (Gorma kvartett) vinnur með þessi hljóð, kallar þau fram og magnar upp. Með því að nota snerti hljóðnema (contact mic) sem nemur hljóð í föstum efnum á gormadýnu er hægt að gera hljóðin skýrari og merkjanleg og úr verður hljóðfæri eða hljópskúlptúr.
Míní Rave er skynvænt rave fyrir öll börn. Áhersla er lögð á að allir geti tekið þátt óháð greiningum og getustigi. Lögin eru valin með hljóðáreiti í huga og hljóðstyrk haldið niðri svo að öll börn geti fengið útrás á dansgólfinu, leikið sér með fána, borða og allskyns “rave” fikt dóti. Hljóðeinangrandi heyrnarhlífar verða í boði á meðan á viðburðinum stendur. Stanslaust stuð á skynsegin hátt fyrir öll börn!
Austanátt Hefur þú velt fyrir þér hvernig hamingjusamur flóðhestur hljómar? Eða reynt að marsera í þrískiptum takti? Austanátt er splunkuný og orkumikil hljómsveit sem leikur fönk, tangó, diskó, čoček og allt þar á milli - en er alltaf dansvæn. Hljómsveitin er skipuð sjö blásurum og einum trommara og sækir innblástur til austari heimshluta.
Tónlistarföndur á bókasafninu Borgarbókasafnið býður upp á tónlistartengt föndur inni á bókasafninu þar sem börnum og fjölskyldum gefst tækifæri til að slappa af á milli dagskrárliða, glugga í bækur og föndra í rólegheitunum. Big bang litabókamyndir Tónlistar-bókamerki og Litríkar hristur.
Dans Afríka Iceland kynna áhorfendur fyrir ævintýraheimi menningar Gíneu vestur Afríku í gegnum trommuleik víðsvegar um hátíðarsvæðið. Þau koma með afríska hitann og gleðina í sýningu þar sem öll geta tekið þátt með því að læra nokkur dansspor við lifandi trommuslátt.
Árstíðir er fjörugt og litríkt tónleikhús eftir Elínu Gunnlaugsdóttur. Verið er samið fyrir söngvara, flautu og píanó og byggir á skemmtilegum og hnyttnum ljóðum úr ljóðabókinni Árstíðir eftir Þórarin Eldjárn. Söngkonan leiðir ferðalagið sem sögumaður og söngvari en hljóðfæraleikararnir taka fullan þátt í frásögninni með leikandi tónum.
Erindrekar eru gestgjafar BIG BANG og verða á ferð og flugi um hátíðarsvæðið á meðan á hátíðinni stendur. Þau munu taka vel á móti gestum BIG BANG!
Öll velkomin og allt ókeypis!
Nánar á Barnamenningarhatid.is