Betri tækifæri til að þróa og efla heimaþjónustu í nýju húsnæði
Heimaþjónusta Reykjavíkurborgar er flutt í nýtt og mun hentugra húsnæði á tveimur stöðum í borginni. Heimaþjónusta Suðaustur er nú á Höfðabakka 9a og Heimaþjónusta Norðvestur í Lágmúla 4.
Betri starfsaðstæður
Áður voru starfsstaðirnir þrír – í Hraunbæ, Efstaleiti og á Vitatorgi. Á nýjum stöðum eru starfsaðstæður allar betri, rýmra er um starfsemina og aðgengi betra.
Undir heimaþjónustu heyrir hvort tveggja heimahjúkrun og heimastuðningur. Auk þess fjöldi sérteyma á borð við skjáver og heilabilunarteymi. Reykjavíkurborg hefur allt frá árinu 2009 rekið heimahjúkrun með þjónustusamningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Í heimaþjónustunni starfa nokkur hundruð manns. Í þeim hópi eru heilbrigðisstarfsmenn sem sinna heimahjúkrun, auk fjölbreytts hóps fólks sem sinnir heimastuðningi og margvíslegum verkefnum þar sem markmiðið er að veita einstaklingsmiðaða þjónustu til að styðja við og hámarka heilsu, vellíðan og sjálfstæði.
Flutningarnir eru hluti af skipulagsbreytingum sem miða að því að bæta og samræma þá þjónustu sem veitt er í heimahúsi. Þannig eiga íbúar að geta gengið að sambærilegri þjónustu, sama hvar þeir búa í borginni.
„Þjónustuþarfir í heimaþjónustu eru að breytast hratt og verða í mörgum tilvikum bæði þyngri og flóknari. Í dag erum við að veita fjölbreyttari og sérhæfðari heilbrigðisþjónustu inni á heimilum fólks en áður. Það kallar á nýjar leiðir í skipulagi, aukna samþættingu þjónustu og meiri sérhæfingu starfsfólks. Með þeim breytingum sem við erum að ráðast í núna getum við betur tryggt samræmda og örugga þjónustu um alla borg, þannig að eldra fólk fái réttan stuðning á réttum tíma heima hjá sér eins lengi og mögulegt er,“ segir Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Reglulega er auglýst eftir hjúkrunarfræðingum til að slást í öflugan starfsmannahóp. Það er tilvalið fyrir hjúkrunarfræðinga í leit að nýjum áskorunum að fylgjast með á vef Reykjavíkurborgar þar sem ný störf eru auglýst reglulega.