Betri aðstæður og meira pláss á nýju fjölskylduheimili
Fjölskylduheimilið Mánaberg er flutt á nýjan stað í borginni. Þeim tímamótum var fagnað með innflutningsgleði síðastliðinn föstudag, þar sem starfsfólk Mánabergs, Barnaverndar Reykjavíkur og aðrir velunnarar Mánabergs komu saman.
Í Mánabergi fer fram umönnun barna sem vegna aðstæðna heima fyrir geta ekki verið þar. Þau búa þá tímabundið í Mánabergi. Þangað koma líka fjölskylkdur búa í 3 til 6 mánuði í senn, á meðan foreldrar eða forsjáraðilar fá aðstoð við að auka færni sína í uppeldishlutverkinu.
Mánaberg var um þrjátíu ára skeið staðsett á Laugarásvegi. Það húsnæði var komið til ára sinna og hentaði ekki starfseminni lengur, meðal annars með tilliti til aðgengismála. Undanfarna mánuði hefur starfsemin verið í bráðabirgðahúsnæði og var það því góð stund þegar hægt var að hefja starfsemi á nýjum stað fyrir skemmstu.
Aðstæður fyrir börn og fjölskyldur þeirra eru afar góðar í nýju húsnæði. Þar eru rúmgóð herbergi með sérbaðherbergi og gott sameiginlegt rými. Starfsfólk Mánabergs hefur lagt sig allt fram við að skapa heimilislegt og notalegt andrúmsloft á nýjum stað, svo vistin verði börnum og fjölskyldum þeirra sem allra best. Þá eru starfsaðstæður fyrir starfsfólk jafnframt mun betri á nýjum stað en áður.