Beiðni ungmennanna um flottan körfuboltavöll varð að veruleika

Hópur af ungmennum með borgarstjóra á körfuboltavellinum endubætta í Völvufelli.

Ungmenni í Breiðholti lögðu fram hugmynd á fundi með borgarstjóra um að körfuboltavöllurinn í Völvufelli yrði lagaður og nú hefur ósk þeirra orðið að veruleika.

Upphafið að endurbótunum á rætur að rekja til ungmennafundar sem Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri boðaði til þegar hún var með Hverfadaga í Breiðholti í október. 

Orðinn aðlaðandi samkomustaður

Á fundinum komu saman fulltrúar ungmennaráða og hópur úr 16+ starfinu sem nýtti tækifærið sem þau fengu til að setja fram sínar hugmyndir. Ein hugmyndin var að fríska upp á körfuboltavöllinn og gera hann að aðlaðandi samkomustað.

„Þetta var völlur sem var í mikilli niðurníðslu og þau lýstu því hvað það væri sorglegt að geta ekki nýtt hann. Þau vildu einfaldlega geta spilað körfubolta,“ segir Heiða Björg „Mér fannst þetta eitthvað sem við ættum að gera og við kýldum á það.“

Borgarstjóri segir mikilvægt að ungmenni finni að rödd þeirra skipti máli. „Það er svo gaman að geta sýnt að samráðið skiptir máli og að það sem þau leggja til geti orðið að veruleika.“

Ungmenni spila körfubolta á vellinum.

16+ starfið er mikilvæg forvörn

Áhrifin hafa þegar látið á sér kræla. Frá því að völlurinn var lagfærður hefur aukið líf færst í þennan hluta hverfisins. „Það er bara orðið líf hér á kvöldin þar sem fjölskyldur, ungmenni og fólk á öllum aldri safnast saman,“ segir Karen Rún Helgadóttir fulltrúi úr 16+ starfinu. „Þetta er orðið ákveðinn samkomustaður.“

16+ starfið er ætlað ungmennum á framhaldsskólaaldri og veitir þeim vettvang til að hittast og taka þátt í jákvæðu félagsstarfi.

„Þetta er ótrúlega mikilvæg forvörn. Ekki öll heimili geta tekið á móti stórum hópum og því skiptir miklu máli að skapa öruggt rými þar sem ungmenni geta átt góð samskipti og verið í jákvæðri virkni,“ segir Karen að lokum.

Vonir standa til að körfuboltavöllurinn verði áfram stór hluti af starfinu og efli enn frekar samfélagið í hverfinu.

Borgarstjóri og tvö ungmenni klippa á borða.
Frá vinstri: Sidiq Muhanat Abdiraxman, Heiða Björg Hilmisdóttir og Youssef El Atrouss klippa á borða til að opna körfuboltavöllinn formlega.