Bætt umferðaröryggi á árinu
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær var samþykkt tillaga um að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna umferðaröryggisaðgerða á nokkrum stöðum í Reykjavík.
Markmið aðgerðanna er að bæta umferðaröryggi, sérstaklega fyrir gangandi vegfarendur og hjólandi, og draga úr hraða bílaumferðar á stöðum þar sem slys hafa orðið eða nálægt gönguleiðum skólabarna. Tillögurnar byggja meðal annars á greiningu á slysagögnum síðustu ára.
Um er að ræða nokkrar staðsetningar í borginni:
- Gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar, hraðahindranir í framhjáhlaupum.
- Reykjavegur við Hofteig og Kirkjuteig, hraðalækkandi aðgerðir og bætt öryggi fyrir gangandi vegfarendur.
- Úlfarsbraut við Urðarbraut, hraðalækkandi aðgerð við skóla og gangbraut.
- Holtavegur við Efstasund, upphækkuð gönguþverun.
- Snekkjuvogur við Eikjuvog, aðgerð á gatnamótum til að bæta sjónlengdir og tryggja örugga gönguþverun.
- Flúðasel, beygja þrengd svo ökumenn hægi betur á sér við fjölfarna gönguleið skólabarna.
- Dyngjuvegur við Langholtsveg, eyra breikkað til að bæta sýn á gönguþverun og í gatnamótum. Eitt bílastæði fjarlægt vegna aðgerðanna.
- Eskitorg við Litluhlíð, upphækkuð gönguþverun og beygjur þrengdar til að lækka aksturshraða yfir gangbraut.
- Lambhagavegur við Mímisbrunn, hraðalækkandi aðgerð til að tryggja umferðaröryggi í gatnamótum.
Einnig eru fyrirhugaðar nokkrar aðgerðir í nágrenni nýs skóla í Múlum til að bæta öryggi gangandi vegfarenda. Þá er áætlað að fara í endurgerð hraðahindrana á nokkrum stöðum í borginni auk þess að lýsing verður bætt.