Auglýst eftir innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar
Starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar verður auglýst. Borgarráð samþykkti í dag auglýsingu um starfið, erindisbréf um skipan ráðgefandi hæfisnefndar vegna ráðningarinnar og áætlun um ráðningarferli.
Þáverandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar hætti störfum í desember 2024. Borgarráð hefur það hlutverk að ráða starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurborg og veita þeim lausn frá störfum, samanber 74. grein samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar númer 1020/2019 með síðari breytingum.
Í samræmi við reglur um ráðningar borgarráðs í æðstu stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurborg skal borgarstjóri leggja fram tillögu að auglýsingu um starfið, tillögu að erindisbréfi um skipan ráðgefandi hæfisnefndar ásamt tillögu að áætlun um ráðningarferli til samþykktar í borgarráði.
Tilgangur reglna um ráðningar borgarráðs í æðstu stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurborg er að stuðla að því að val á æðstu stjórnendum ráðist af hæfni umsækjenda og grundvallist á ráðningarferli þar sem gagnsæi og jafnræði eru höfð að leiðarljósi og einungis málefnalegar forsendur liggi að baki vali á stjórnendum.