Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hafin
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandiðu hófst í dag. Þjóðaratkvæðagreiðslan verður 29. ágúst.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hefst í dag.
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst en utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hugsuð fyrir þá kjósendur sem geta ekki kosið á kjördag eða sótt kjörfund.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Hlíðasmára 1 í Kópavogi. Í dag og til föstudags er opið frá klukkan 10 til 16. Um verslunarmannahelgina er lokað en frá 4. til 23. ágúst verður opið frá klukkan 10 til 18. Síðustu daga fram að kjördegi, 24. til 28. ágúst, er opið frá klukkan 10 til 21.
Á kjördag, laugardaginn 29. ágúst, verður opið frá klukkan 10 til 17 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.
Á ísland.is má sjá lista yfir staðsetningu og opnunartíma þar sem hægt er að kjósa utan kjörfundar. Á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is., má fletta upp í kjörskrá eftir kennitölu.
Kosning utan kjörfundar erlendis fer fram hjá sendiráðum Íslands og aðalræðisskrifstofum, fastanefndum Íslands hjá alþjóðastofnunum og ræðismönnum Íslands, samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins.
Á vef Stjórnarráðs Íslands má sjá lista yfir staði erlendis þar sem íslenskir ríkisborgarar geta kosið utan kjörfundar.
Ef kjósandi kýs utan kjörfundar ber hann sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu til skila. Kjósandi getur beðið kjörstjóra um að setja atkvæði í almennan póst, en það tryggir ekki að atkvæðið berist í tæka tíð.
Þess má geta að kjósendur í Reykjavík geta komið atkvæði sínu til skila í afgreiðsluna í Ráðhúsi Reykjavíkur eða í þjónustuver í Borgartúni 12. Kjósendur í Reykjavík geta ennfremur flett upp kjörstaðnum sínum eftir lögheimili á reykjavik.is/kosningar - þar er sýnd gönguleið á kjörstað og hvaða strætóleiðir eru í boði.
Allir kjósendur á kjörskrá, það eru íslenskir ríkisborgarar sem eru eldri en 18 ára, mega kjósa utan kjörfundar. Þá verða einnig kosningar inni á ákveðnum stofnunum eins og sjúkrahúsum, fangelsum og dvalarheimilum aldraðra. Sýslumaður auglýsir hvar og hvenær hægt er að kjósa á viðeigandi stöðum.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.