Ánægja með nýjar kennslustofur í Ölduselsskóla
Færanlegar kennslustofur voru teknar í notkun við Ölduselsskóla um miðjan apríl, samhliða viðamiklum viðhaldsframkvæmdum í skólanum.
Mikil ánægja er með kennslustofurnar sem nú hýsa 1. til 4. bekk, þar er góð hljóðvist, loftræsting og aðgengi að sögn Erlu Erlendsdóttur skólastjóra. Hægt er að opna hverja kennslustofu út hefur meðal annars opnun út á við, sem bætir vinnuaðstæður nemenda og starfsfólks.
Áður en nýju stofurnar komu til sögunnar þurfti að grípa til ýmissa bráðabirgðalausna. Um eitt hundrað nemendur voru að hluta í Seljakirkju þar sem kennd var íslenska og stærðfræði. Kennsla fór fram á fleiri stöðum og gengu nemendur á milli staða eftir námsgreinum. Innan skólans voru og eru ýmis rými nýtt undir kennslu svo sem skrifstofur, bókasafn og gangar.
Uppsetning nýju kennslustofanna gekk vel
Undirbúningur og uppsetning kennslustofanna hófst í janúar og var mikið lagt upp úr góðu skipulagi. Fundir voru haldnir reglulega því að verkefninu komu fjölmargir. Á tímabili var töluverð umferð þungaflutninga og fjöldi starfsmanna við störf á svæðinu bæði við kennslu og framkvæmdir sem krafðist nákvæmrar samhæfingar. Á rétt um þremur mánuðum tókst að koma kennslustofunum fyrir sem rúma fyrstu fjóra bekki skólans.
Nemendur hafa tekið breytingunum vel og ríkir spenna fyrir nýju aðstöðunni. Foreldrar fagna einnig bættu rými eftir tímabil í nokkrum þrengslum.
Framkvæmdir við skólann halda áfram og er gert ráð fyrir að fimm ný kennslurými bætist við í ágúst og möguleiki á tveimur til viðbótar. Samhliða stendur yfir þarfagreining vegna heildarhönnunar skólans og framtíðaruppbyggingar.