Alþjóðlega Velsældarþingið í Hörpu – Endurskilgreining á árangri

Heið Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í pallborðsumræðum á Velsældarþinginu í Hörpu í dag
Heið Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í pallborðsumræðum á Velsældarþinginu í  Hörpu í dag.

Velsældarþingið (The Wellbeing Economic Forum) er haldið í Hörpu þessa dagana. Sérfræðingar og stjórnmálamenn taka þátt í þinginu þar sem rætt er um mikilvægi lífsgæða í samfélaginu.

 

 

Á Velsældarþinginu kemur saman alþjóðlegur hópur fólks; stjórnmálamenn, stefnumótendur, fræðafólk, sérfræðingar og áhugafólk um að aukna velsæld í samfélaginu með því að horfa til samfélagslegra og umhverfislegra mælikvarða auk hinna efnahagslegu.

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, tók þátt í pallborðsumræðum á Velsældarþinginu  í dag. Umræðuefni pallborðsins var hagfræðileg framtíðarsýn fyrir velferð barna. Heiða Björg borgarstjóri ræddi um hvernig innkaup og fjárfesting Reykjavíkurborgar geti bætt velsæld barna. Hún ræddi jafnframt um nýja Matarstefnu Reykjavíkurborgar sem miði að því að marka skýran vegvísi í matarmálum borgarinnar og leggja áherslu á að allir íbúar hafi jafnt aðgengi að hollum, næringarríkum og bragðgóðum mat, óháð efnahagslegum aðstæðum.

Velsældarþing er haldið með stuðningi frá JA PreventNCD-verkefninu sem er evrópskt samstarfsverkefni sem miðar að því að draga úr byrðinni af langvinnum sjúkdómum og krabbameini í Evrópu, með áherslu á forvarnir, samhæfðar stefnur og aðgerðir til að takast á við samfélagslegan ójöfnuð og áhættuþætti. JA PreventNCD er stýrt af Evrópusambandinu en Ísland er eitt þeirra landa sem gegnir forystuhlutverki í verkefninu.

Þetta er fjórða árið sem Velsældarþingið er haldið. Verndari Velsældarþings er Halla Tómasdóttir forseti Ísland en forseti þingsins er Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis.