Aðgerðir um líffræðilega fjölbreytni í samráðsgátt

Loftmynd af trjám og á.

Drög að nýrri aðgerðaráætlun um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík fyrir árin 2026-2030 eru komin í samráðsgátt borgarinnar. Áætlunin er innleiðing á gildandi stefnu borgarinnar um líffræðilega fjölbreytni. íbúum  Reykjavíkurborgar, samtökum og stofnunum býðst að koma á framfæri sínu áliti, tillögum, ábendingum og sjónarmiðum um drögin.

Aðgerðaáætlunin er innleiðing á markmiðum núverandi stefnu Reykjavíkurborgar um líffræðilega fjölbreytni. Hún skiptist í sex yfirmarkmið: 

  • rannsóknir,
  • að búsvæði í borginni séu vernduð og efld,
  • að unnið sé gegn helstu ógnum líffræðilegrar fjölbreytni,
  • að íbúar séu fræddir um málefnið,
  • hugað sé að líffræðilegri fjölbreytni í allri starfsemi Reykjavíkur og að
  • borgin sé leiðandi á því sviði.

Aðgerðaáætlunin er sett fram í samræmi við þessi yfirmarkmið.

Opið er fyrir að skila inn áliti til 16. mars næstkomandi.