Aðgerðir um líffræðilega fjölbreytni í samráðsgátt
Drög að nýrri aðgerðaráætlun um líffræðilega fjölbreytni í Reykjavík fyrir árin 2026-2030 eru komin í samráðsgátt borgarinnar. Áætlunin er innleiðing á gildandi stefnu borgarinnar um líffræðilega fjölbreytni. íbúum Reykjavíkurborgar, samtökum og stofnunum býðst að koma á framfæri sínu áliti, tillögum, ábendingum og sjónarmiðum um drögin.
Aðgerðaáætlunin er innleiðing á markmiðum núverandi stefnu Reykjavíkurborgar um líffræðilega fjölbreytni. Hún skiptist í sex yfirmarkmið:
- rannsóknir,
- að búsvæði í borginni séu vernduð og efld,
- að unnið sé gegn helstu ógnum líffræðilegrar fjölbreytni,
- að íbúar séu fræddir um málefnið,
- hugað sé að líffræðilegri fjölbreytni í allri starfsemi Reykjavíkur og að
- borgin sé leiðandi á því sviði.
Aðgerðaáætlunin er sett fram í samræmi við þessi yfirmarkmið.
Opið er fyrir að skila inn áliti til 16. mars næstkomandi.