40 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða fagnað í Reykjavík
Viðburðapottur fyrir almenning, endurnýjað söguhorn í Höfða og úrbætur á byggingunni verða meðal verkefna sem Reykjavíkurborg leggst í, í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða. Þá verður Höfða friðarsetri veittur viðbótarstuðningur.
Í október árið 1986 áttu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjev, leiðtogi Sovétríkjanna, sögulegan fund í Höfða. Fundurinn, sem þótti marka upphafið að endalokum kalda stríðsins, vakti heimsathygli og er almennt talinn til stóratburða í samtímasögu Íslands.
Í haust verða 40 ár liðin frá leiðtogafundinum, eins og hann er jafnan kallaður og var af því tilefni skipaður stýrihópur um hlutverk Reykjavíkurborgar af þessu tilefni. Var honum falið móta hugmyndir um hlutverk borgarinnar í markaðssetningu en jafnframt um hvernig borgin gæti með markvissum hætti haldið á lofti mikilvægi leiðtogafundarins og undirstrikað ímynd Reykjavíkur sem friðar- og samræðuvettvangs á alþjóðavísu. Starfshópurinn lagði til sex tillögur, sem samþykktar voru í borgarráði í gær.
Tillögurnar sem samþykktar voru fela í sér eftirfarandi:
- Stofnaður verður viðburðapottur til að stuðla að sjálfsprottinni þátttöku almennings í viðburðinum. Markmiðið er að ýta undir fjölda smáviðburða á vegum einstaklinga, safna og listhópa í kringum afmælið. Fjárhæð pottarins nemur 2,5 milljónum króna.
- Þeirri tillögu verður vísað til menningar- og íþróttasviðs að Reykjavíkurborg og menningarstofnanir hennar standi fyrir smærri verkefnum til að vekja athygli á Höfðafundinum. Þar á meðal verði ljósmyndasýning í almannarými á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur og sérstök kynning í tengslum við útgáfu bókar Sögufélags um sögu leiðtogafundarins, en útgáfan nýtur stuðnings Reykjavíkurborgar. Þá kemur til greina að framleiða kennsluefni samhliða bók Sögufélagsins um sögu leiðtogafundarins, sem yrði dreift í grunnskóla borgarinnar.
- Söguhorn um leiðtogafundinn, sem staðsett er í Höfða, verður endurnýjað og sögumerkingum um leiðtogafundinn komið fyrir í umhverfi Höfða.
- Boðið verður upp á opið hús í Höfða fyrir almenning á völdum dagsetningum innan þess ramma sem húsnæðið ber.
- Leitað verður leiða til að ráðast í brýnar úrbætur á Höfða, þar á meðal hvað varðar aðgengi og salernisaðstöðu.
- Veittur verður viðbótarstuðningur við Höfða friðarsetur í tengslum við tíu ára afmæli stofnunarinnar. Þá verður hin árlega ráðstefna Höfða friðarseturs haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og felld saman við opnun kjarnorkuvopnasýningar frá Hírósíma.