15 prósent hafa þegar breytt dvalartíma
Leikskólaleiðin í Reykjavík tekur gildi 1. apríl 2026 samkvæmt breytingu á reglum um leikskólaþjónustu sem samþykktar voru í borgarráði í dag.
Ný gjaldskrá miðast við gjaldfrían leikskóla fyrir 36 stundir á viku og er eingöngu greitt fyrir fæði ef dvalartíminn er innan þessara marka. Gjald fyrir 38 tíma verður mjög hóflegt eða um 7000 krónur á mánuði.
Núverandi afsláttarflokkar leggjast af og ráða tekjur foreldra og forsjáraðila í hvaða afsláttarflokki þeir lenda. Sækja verður um tekjutengdan afslátt og verður það kynnt síðar. Afslættir munu taka gildi 1. apríl.
- Starfsmannaafsláttur verður 50% af námsgjaldi.
- Systkinaafsláttur helst óbreyttur.
Opið í Völu fyrir breytingar á dvalartíma
Nú þegar hafa um 15 prósent foreldra og þau sem fara með forsjá breytt dvalartíma barna sinna og mun sú breyting taka gildi 1. apríl næstkomandi.
Til að foreldrar og þau sem fara með forsjá geti gert breytingar á dvalartíma um leið og nýju reglurnar taka gildi hefur fyrirvari til að gera breytingar verið styttur tímabundið.
Foreldrar sem óska eftir að breyta dvalartíma þurfa að sækja um í Völu.
Vegna yfirstandandi breytinga á gjaldskrá gilda eftirfarandi tímamörk fyrir afgreiðslu umsókna:
- Umsóknir sem berast 1.–15. mars 2026 taka gildi frá 1. apríl 2026.
- Umsóknir sem berast 16.–31. mars 2026 taka gildi frá 15. apríl 2026.
- Umsóknir sem berast 1.–15. apríl 2026 taka gildi frá 1. maí 2026.
Frá og með 1. maí 2026 gilda aftur hefðbundnar reglur um breytingar á dvalartíma samkvæmt reglum um leikskólaþjónustu, þar sem fyrirvari er einn mánuður.
Vistun þarf að hefjast í síðasta lagi klukkan 9:00
Í nýjum reglum um leikskólaþjónustu er gert ráð fyrir að vistun hefjist fyrir klukkan 9:00. Þau sem þegar eru með vistun sem hefst eftir klukkan 9:00 fá frest til að gera breytingar á vistun til 31. júlí 2026. Ef ekki hefur borist beiðni um breytingu fyrir þann tíma breytist hann sjálfkrafa til klukkan 9:00 frá og með 1. september 2026.
Systkinatillit og systkinasameining
Möguleikar fyrir systkini til að fá pláss á sama leikskóla hafa verið auknir í nýju reglunum. Systkinatillit gildir almennt en í stóru innrituninni mun nú gilda systkinasameining.
Í stóru innrituinni hefur hingað til gilt systkinatillit - þegar eitt pláss er laust í leikskóla eldra systkinis er hægt að bjóða því barni sem efst er í röðinni í annan leikskóla (sem foreldrar hafa valið) svo systkini geti verið saman. Í nýju reglunum er gengið lengra til að sameina systkini í stóru innrituninni, svokölluð systkinasameining. Ef eitt pláss er laust er athugað hvort unnt sé að bjóða allt að þremur börnum pláss í öðrum leikskóla (sem foreldrar hafa valið) svo að hægt sé að sameina systkini.
Skráningardagar eru yfirleitt 9–11 dagar á ári og fylgja að mestu leyti frídögum grunnskólanna í kringum páska, vetrarfrí og jól, líkt og áður. Skráning í þessa daga fer nú fram tvisvar á ári:
- 10.–20. september fyrir haustönn.
- 10.–20. janúar fyrir vorönn.
Skráningardagar
Skráning fer fram í Völu. Hver skráningardagur kostar 5.000 kr. sem bætist við mánaðargjaldið. Systkinaafsláttur gildir þannig að yngra systkini fær 50% afslátt og þriðja barn fær fullan afslátt. Aðrir afslættir gilda ekki um skráningardaga. Greiðslur vegna skráningardaga eru innheimtar í þeim mánuði sem dagurinn er.
Leikskólar verða lokaðir einn dag í vetrarfríi í febrúar, og árið 2027 verður sá dagur 22. febrúar. Markmiðið með þessari breytingu er að samræma skipulag og skóladagatöl leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar.
Foreldrar eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um Leikskólaleiðina í Reykjavík á vef borgarinnar, þar sem má finna svör við algengum spurningum. Einnig er hægt að nota reiknivélina á síðunni til að sjá hvernig ný gjaldskrá gæti tekið sig út fyrir hvert heimili.