Viðsnúningur í rekstri Reykjavíkurborgar rúmir 14 milljarðar

Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta Reykjavíkurborgar fyrir árið 2024 var jákvæð um 10,7 milljarða króna sem er 14,1 milljarði betri niðurstaða en árið 2023. Þá var rekstur A-hluta jákvæður um 4,7 milljarða sem er viðsnúningur upp á 9,7 milljarða frá árinu áður. Þá lækkar skuldahlutfall. Ársreikningurinn var lagður fyrir borgarráð í dag og vísað til borgarstjórnar.
Grunnrekstur borgarinnar skilar afgangi upp á 4,7 milljarða
Rekstrarniðurstaða A-hluta árið 2024 var jákvæð um 4,7 milljarða króna sem var 9,7 milljörðum betri niðurstaða en árið 2023. Í fjárhagsáætlun ársins 2024 var gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaðan yrði jákvæð um 650 milljónir króna.
Viðsnúning í rekstri A-hluta má meðal annars rekja til þess að tekjur jukust um 10,2% á meðan rekstrargjöld jukust aðeins um 7,6% án afskrifta og breytinga á gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Þá lækkar lífeyrisskuldbinding A-hluta á milli ára og skilaði tekjufærslu að fjárhæð 847 milljónum króna. Fjárhagsáætlanir gengu að öðru leyti að mestu eftir.
Stöðugildi A-hluta voru að meðaltali 8.606 á árinu 2024 og breyttist óverulega frá árinu 2023.
„Það skiptir miklu máli að halda áfram að gera betur og forgangsraða fjárfestingum og þjónustu fyrir fólkið í borginni, fyrir sjálfbæra og réttláta framtíð okkar samfélags.”

Sterk staða samstæðunnar
Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var 3 milljörðum krónum betri en áætlað var í fjárhagsáætlun ársins. Faxaflóahafnir, Orkuveita Reykjavíkur, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Strætó, ásamt A-hluta borgarinnar skiluðu öll betri niðurstöðu en gert hafði verið ráð fyrir. Vegur þyngst afkoma A-hluta eða þess rekstrar sem rekinn er af skatttekjum en hann var um 4 milljörðum betri en áætlað var. Afkoma Orkuveitu Reykjavíkur var tæplega 3 milljörðum umfram áætlanir og afkoma Faxaflóahafna var 815 milljónum krónum umfram áætlanir sem má að miklu leyti rekja til aukinna tekna af hafnarþjónustu. Afkoma Félagsbústaða var undir áætlun þar sem matsbreytingar fjárfestingaeigna voru lægri en forsendur gerðu ráð fyrir en tekjur félagsins fyrir vexti, skatta og afskriftir (EBITDA) voru hins vegar sterkari en áætlað hafði verið. Afkoma SORPU var undir áætlun sem má rekja til afskrifta umfram áætlanir.
Skuldaviðmið A- og B-hluta samkvæmt ákvæði 64. gr. sveitarstjórnarlaga og reglugerð 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga lækkar milli ára og var 104% í árlok 2024 en var 110% árið 2023. Skuldaviðmið A-hluta var 77% og lækkar um fimm prósentustig frá fyrra ári.

Mikilvægt að ná niður verðbólgu og vöxtum
Ytra rekstrarumhverfi Reykjavíkurborgar hefur á undanförnum árum einkennst af þenslu á vinnumarkaði, þrálátri verðbólgu og háum vöxtum. Á árinu 2024 tók verðbólga að hjaðna og mældist 4,8% í desember. Samhliða því hóf Seðlabanki Íslands að lækka stýrivexti, sem stóðu í 8,5% í árslok. Samkvæmt Seðlabanka Íslands er verðbólguþrýstingur enn til staðar sem kalli á áframhaldandi þétt taumhald peningastefnunnar og varkárni við stýrivaxtaákvarðanir.
Þróun næstu missera ræðst að mestu af því hversu vel gengur að ná niður verðbólgu og vöxtum án þess að kæla hagkerfið um of. Samið hefur verið til langs tíma við stóran hluta vinnumarkaðarins sem eykur fyrirsjáanleika í launaþróun. Sveitarfélögin studdu myndarlega við gerð kjarasamninga með lækkun gjaldskráa og þátttöku í gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Blikur eru á lofti í alþjóðlegum efnahagsmálum, bæði vegna tollaáætlana og stríðsátaka. Mikil óvissa ríkir um hvaða áhrif þessir þættir muni hafa á innlent hagkerfi.
Þróun næstu missera ræðst að mestu af því hversu vel gengur að ná niður verðbólgu og vöxtum án þess að kæla hagkerfið um of.
Mikilvæg skref í fjárhagslegum samskiptum við ríkið
Áskoranir í rekstri Reykjavíkurborgar eru meðal annars vegna verkefna sem flutt hafa verið frá ríki til sveitarfélaga án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Náðst hafa áfangar í fjármögnun á málaflokki fatlaðs fólks þegar samið var um 0,22% hækkun á álagningarhlutfalli útsvars í árslok 2022 og síðan 0,23% hækkun í árslok 2023. Niðurstaða skýrslu starfshóps ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun málaflokksins sýnir þó að enn vantar upp á fulla fjármögnun málaflokksins til framtíðar.
Þá var í mars 2025 undirritað samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga vegna úrræða fyrir börn með fjölþættan vanda og uppbyggingar hjúkrunarheimila.

Fjárfest í viðhaldi skóla og innviðauppbyggingu
Fjárfestingar ársins 2024 námu 20,7 milljörðum og einkenndust að miklu leyti af viðhaldsátaki í skólum og fjárfestingu í innviðum til að tryggja uppbyggingu húsnæðis. Fjárfestingar voru fjármagnaðar með lántökum að fjárhæð 16,2 milljörðum, annars vegar með útgáfu skuldabréfa og hins vegar með lántöku hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins.
Reykjavíkurborg áætlar að fjármagna fjárfestingar ársins 2025 með lántökum allt að 16,5 milljörðum króna. Gert er ráð fyrir að lántakan fari fram með útgáfu skuldabréfa á skuldabréfamarkaði, með beinni lántöku eða með öðrum hætti til að mæta fjárþörf borgarsjóðs á hverjum, tíma. Ákvörðun um fyrirkomulag hvers skuldabréfaútboðs er tekin í aðdraganda þess, meðal annars að teknu tilliti til lánskjara, stöðu framkvæmda og fjárþarfar á hverjum tíma.
Áframhaldandi aðhald í rekstri
Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2025‐2029 sem samþykkt var þann 3. desember síðastliðinn eru áfram gerðar ríkar kröfur um aðhald í rekstri. Fjárhagsáætlunin byggir á grunni fjármálastefnu Reykjavíkurborgar 2023‐2027 með skýrum áherslum og markmiðum sem fylgt hefur verið fast eftir. Mælikvarðar fjármálastefnunnar fyrir A‐hluta sýna hægfara bata og gert er ráð fyrir að markmiðum stefnunnar verði náð árið 2025.
„Reykjavíkurborg er sterkt sveitarfélag í örum vexti þar sem áhersla er á að skapa græna borg þar sem við öll getum fundið okkur stað og fundið að við skiptum öll máli
Skiptir miklu að forgangsraða fjárfestingum og þjónustu fyrir fólkið í borginni
„Reykjavíkurborg er sterkt sveitarfélag í örum vexti þar sem áhersla er á að skapa græna borg þar sem við öll getum fundið okkur stað og fundið að við skiptum öll máli” segir Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri. „Það er gleðilegt að sjá rekstur Reykjavíkurborgar þróast í betri átt en áætlanir gerðu ráð fyrir, ég vil þakka starfsfólki borgarinnar og félögum mínum í stjórn borgarinnar.”
Fyrri umræða um ásreikninginn 2024 verður í borgarstjórn þann 6. maí næstkomandi.