Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur í sumar

Dalslaug í Úlfarsárdal, en þar verður engin viðhaldslokun í sumar.
Dalslaug í Úlfarsárdal, en þar verður engin viðhaldslokun í sumar

Nú fer að koma að viðhaldslokunum í sundlaugunum í Reykjavík. Viðhaldslokanir fara fram á sumrin þar sem ekki er hægt að sinna viðhaldi utanhúss á veturna. 

Í viðhaldslokunum er farið í viðgerðir á mannvirkjum, málun, múrvinnu og almennt viðhald sem ekki er hægt að framkvæma á opnunartíma

Lengri viðhaldslokun í Vesturbæjarlaug

Í Vesturbæjarlaug  er lengri viðhaldslokun en í öðrum sundlaugum þar sem sinna þarf fleiri verkefnum. Má þar nefna málun á laugarkeri,  að skipta út rennibraut, færa körfuboltaspjald, lyftu við barnalaug, skipta um neyðarkerfi og annað almennt viðhald.

Framkvæmdir á nýjum sánum

Framkvæmdir á nýjum sánum í Vesturbæjarlaug hefjast föstudaginn 2.maí. Nauðsynlegt reynist að loka sérklefanum á meðan á framkvæmdum stendur þar sem ekki er hægt að tryggja örugga leið til og frá þeim klefa vegna nálægðar við framkvæmdarsvæði. 

Þetta á einnig við um hjólastólaaðgengi að Vesturbæjarlaug á þessum tíma þar sem inngangur fyrir fólk í hjólastólum er á framkvæmdarsvæði. 

Útiklefar verða opnir en munaskápar verða færðir í anddyri og gengið verður í klefana frá laug.

Þegar viðhaldslokanir standa yfir getur verið gaman að bregða út af vananum og heimsækja aðra sundlaug í Reykjavík. Viðhaldslokanir skarast yfirleitt ekki mikið milli sundlauga.

Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur í sumar:

Árbæjarlaug: 19. maí – 4. júní

Breiðholtslaug: 10. – 17. maí 

Dalslaug: Engin lokun

Grafarvogslaug: 6. – 12. júní

Klébergslaug: Engin lokun

Laugardalslaug: 30. apríl

Sundhöll: 16. – 24. ágúst

Vesturbæjarlaug: 26. maí – 23. júní 

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

Við þökkum tillitsemina.