Velsældarþing 2025

Frá Velferðarþingi 2024
Frá Velferðarþingi 2024

Velsældarþing í Reykjavík 2025 fer fram í Hörpu dagana 8. og 9. maí næstkomandi. 

Velsældarþingið er nú haldið í þriðja sinn og er mikilvægur vettvangur samræðna og samvinnu meðal stjórnmálamanna, leiðtoga fyrirtækja, fræðimanna og sérfræðinga á heimsvísu þar sem leitast er við að forgangsraða í þágu velsældar og lífsgæða almennings á breiðum grunni. 

Lögð er áhersla á að finna nýjar leiðir sem eru frábrugðnar hinni hefðbundnu nálgun sem byggist eingöngu á efnahagslegum mælingum. Þess í stað eru velsæld og lífsgæði metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum þáttum jafnt sem efnahagslegum. 

Lykilumfjöllunarefni Velsældarþingsins eru meðal annars samræming fjárlaga við velsældarmarkmið, þróun velsældarmælikvarða og hvernig velsældarhagkerfi getur stutt við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Velsældarþingið er haldið í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi Reykjavíkur. Þingið er skipulagt af embætti landlæknis, forsætisráðneytinu, heilbrigðisráðuneytinu, Reykjavíkurborg og fleiri alþjóðlegra stofnana.  

Auk fyrirlestra og umræðna verður boðið upp á ýmsa áhugaverða hliðarviðburði fyrir gesti þingsins sem tengjast velsæld. 

Fyrsta Velsældarþingið í Reykjavík var haldið árið 2023.