Um tvö þúsund ný leikskólapláss á næstu fimm árum

Nærri tvö þúsund ný leikskólapláss sem dreifast á hverfi borgarinnar, verða til á næstu fimm árum samkvæmt tillögum sem borgarráð samþykkti í dag. Tillögurnar koma fram í skýrslu spretthóps borgarstjóra um leikskólauppbyggingu.
Spretthópur borgarstjóra um leikskólauppbyggingu var skipaður í kjölfar samþykktar borgarráðs 20. mars síðastliðinn. Var honum meðal annars falið að yfirfara aðgerðaáætlun stýrihópsins Brúum bilið, sem felur í sér markvissa uppbyggingu leikskólarýma í borginni með það fyrir augum að bjóða börnum frá 12 mánaða aldri í leikskóla borgarinnar, og koma með tillögur að nýjum verkefnum sem tengjast uppbyggingu nýrra leikskóla eða stækkun starfandi leikskóla, með áherslu á framkvæmdir sem ljúka mætti á næstu tveimur árum. Jafnframt var hópnum falið að rýna fyrirliggjandi áætlanir um mönnun og viðhald leikskólamannvirkja og leggja fram tillögur til úrbóta í þeim efnum ef svo bæri við.
Fjölbreyttar tillögur um leikskólauppbyggingu
Hópurinn skilaði skýrslu með tillögum sem borgarráð samþykkti í dag. Í skýrslunni eru lögð til níu uppbyggingarverkefni sem gætu tryggt um 900 ný leikskólapláss. Þar við bætast um 164 ný pláss með stækkunum starfandi leikskóla borgarinnar með færanlegum húsum. Í þriðja hluta eru lagðar fram almennar tillögur meðal annars um stofnstyrki, betri nýtingu skóla- og frístundahúsnæðis í þágu leikskóla sem standa í framkvæmdum og hugmyndir um samstarf við íþróttafélög um stofnun hreystileikskóla. Þá er vikið að áformum skóla- og frístundasviðs um mikilvægar breytingar á reglum um leikskólastarf sem meðal annars er ætlað að bæta stöðu mönnunar og starfsaðstæður í leikskólum borgarinnar. Loks er í fjórða hluta veitt yfirsýn yfir öll þau verkefni sem eru á döfinni og munu fjölga plássum á næstu fimm árum, þar með talin þau verkefni sem þegar hafa verið samþykkt og sett í farveg á vegum stýrihópsins Brúum bilið. Alls er um að ræða 1987 ný leikskólapláss sem dreifast á hverfi borgarinnar eins og sýnt er í skýrslunni.

Alls 1.987 ný pláss næstu 5 árin.
Spretthópinn skipuðu borgarfulltrúarnir Dóra Björt Guðjónsdóttir, Helga Þórðardóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason, sem jafnframt var formaður hópsins. Tillögurnar voru samþykktar í borgarráði í dag en vísað til umræðu í borgarstjórn.

Helga Þórðardóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason.