Úlfur Eldjárn og Julie Trouvé valin til tónlistarsamstarfs milli Reykjavíkur og Nantes

samsett mynd, Úlfur Eldjárn til vinstri, Julie Trouvé til hægri. Svarthvít. Grafískt skilti í miðju sem segir að þau verði í Nantes residency tónlistarsamstarfinu

Tónlistarfólkið Úlfur Eldjárn og Julie Trouvé  hafa verið valin til þátttöku í tónlistarskiptivinnudvöl á milli borganna Nantes í Frakklandi og Reykjavíkur.

Markmið verkefnisins er að tengja saman borgirnar tvær og tónlistarsamfélög þeirra auk þess að stuðla að sjálfbæru samstarfi með því að nýta kraft tónlistar og sköpunar. Vinnudvölin gefur tónlistarfólki tækifæri til að skapa tónlist í fullbúnu hljóðveri og æfingarými í borgunum tveimur. Dvölin er jafnframt einstakt tækifæri fyrir listafólkið til að tengjast tónlistarsenunni í viðkomandi landi, öðru listafólki og aðilum úr tónlistariðnaðinum.

Skiptivinnudvölin er samstarfsverkefni Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Nantes,Tónlistarmiðstöðvar, hafnar.haus, STEF og Listasamsteypunnar Trempo í Nantes, Franska sendiráðsins á Íslandi, Allliance Francaise de Reykjavik og ARDIAN.

Úlfur Eldjárn tónlistarmaður, svarthvítt portrett

Úlfur Eldjárn er íslenskt tónskáld og raftónlistarmaður sem starfar á mörkum samtímatónlistar og raftónlistar. Úlfur vinnur að fjölbreyttum og tilraunakenndum verkefnum þar sem hann nýtir ólíka miðla og tækni til að skapa óhefðbundna upplifun fyrir áheyrendur. Hann semur einnig tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp ásamt því að vera meðlimur í hinni goðsagnakenndu íslensku rafrokkhljómsveit Apparat Organ Quartet. 

Julie Trouvé, frönsk tónlistarkona. Óskýr portrettmynd í lit, heyrnartól á höfði, situr með hné undir kinn

Julie Trouvé er frönsk tónlistarkona sem notast við listamannanafnið Roukie. Í tónlist hennar mætir tilfinningaríkt popp tölvuleikjaheimi með synthum, ljóðrænum textum og draumkenndum hljómum.

Í tengslum við skiptivinnudvölina munu þau bæði koma fram á tónleikum í Reykjavík síðar á árinu. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju.