Sumarstörf fyrir 17 ára ungmenni

Ungmenni við garðyrkjustörf við Hringbraut
Ungmenni við garðyrkjustörf við Hringbraut

Borgarstjórn samþykkti í apríl síðastliðnum að setja sérstakt fjármagn í ráðningar 17 ára ungmenna í sumarstörf til að koma betur til móts við þann hóp.

100 fjölbreytt störf

Um er að ræða 100 störf og eru þetta fjölbreytt störf m.a. með börnum, öldruðum og í umhirðu borgarlandsins. 

Borgarstjórn samþykkti ennfremur að hluti þessara 100 starfa skuli sérstaklega taka mið af 17 ára ungmennum í viðkvæmri stöðu með það að markmiði að styðja þau til atvinnuþátttöku.

Biðlisti sumarstarfa

Þau 17 ára ungmenni sem hafa ekki enn sótt um sumarstarf en hafa áhuga á því, eru hvött til að kynna sér þau störf sem eru í auglýsingu um þessar mundir. Að auki má sækja um á biðlista vegna sumarstarfa. Biðlistinn er opinn öllum einstaklingum sem eiga lögheimili í Reykjavík.

Ef ekki tekst að manna stöður með umsækjendum sem þegar hafa sótt um innan umsóknarfrests, er leitað eftir fólki á biðlistanum. Æskilegt er að umsækjendur svari spurningum um hvar og við hvað þeir myndu helst vilja starfa.

Athuga ber að skráning á biðlista jafngildir ekki boði um starf.

Sumarstörf í borginni

Reykjavíkurborg auglýsti sumarstörf í febrúar og vakin er athygli á því að enn er hægt að sækja um sumarstörf hjá borginni. 

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa ráðninga og mönnunar: mannaudur@reykjavik.is