Stöndum vörð um mannréttindi til að tryggja frið

Friðarráðstefna Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands
Friðarráðstefna Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands

Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fer fram þann 10. október, kl. 10:00–17:00 í Veröld húsi Vigdísar Háskóla Íslands

Taktu þátt í umræðunni um mikilvægi þess að standa vörð um mannréttindi til að tryggja varanlegan frið!

Á tímum vaxandi einræðishyggju, hnignunar lýðræðis og bakslags í mannréttindum, þar á meðal kynjajafnrétti og réttindum LGBTQI+ fólks, er brýnt að beina athygli að því hvernig slíkt bakslag ógnar grundvallarforsendum friðaruppbyggingar. Þegar réttindi einstaklinga eru skert og jaðarhópar verða fyrir kerfisbundinni mismunun, grafa stjórnvöld undan trausti, félagslegri samheldni og þátttöku almennings í lýðræðislegum ferlum. Verndun mannréttinda er því lykilforsenda þess að tryggja varanlegan og réttlátan frið.

Takmarkaður sætafjöldi.

Aðalfyrirlesarar eru meðal annarra:

  • Nazanin Boniadi – heimsþekkt leikkona og mannréttindafrömuður sem leggur áherslu á réttindi kvenna og tjáningarfrelsi í Íran og víðar
  • Varsen Aghabekian Shaheen, utanríkisráðherra Palestínu
  • Jessica Stern – fyrrum sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjanna í málefnum LGBTQI+ fólks og fræðimaður við Carr-Ryan Center for Human Rights við Harvard Kennedy School
  • Vladimir Kara-Murza – rússneskur blaðamaður og lýðræðissinni sem hefur verið fangelsaður fyrir opinskáa andstöðu sína við einræðishætti og óþreytandi baráttu fyrir pólitísku frelsi
  • Dagskrá Friðarráðstefnu Höfða, friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands